Föstudaginn 27. febrúar hélt Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri súpufund með aðilum úr ferðaþjónustunni í Fjarðabyggð. Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust góðar umræður á meðal gesta.
Á fundinum fór Jóna Árný yfir helstu verkefni og framkvæmdir sem eru framundan og snúa að innviðum og upplifun gesta. Þar var meðal annars rætt um aðgengi að Búðarárfossi, stöðu mála varðandi Bleiksárfoss og þau skref sem eru framundan í uppbyggingu Stríðsárasafnsins. Þar er stefnt að því að taka í notkun nýtt móttökuhús ásamt safnahúsi í vor.
Einnig var fjallað um sameiginlegan skíðapassa fyrir Oddsskarð og Stafdal, en nú er hægt að kaupa passa sem gildir á báðum svæðum. Þá var komið inn á málefni tjaldsvæða og í hvaða farvegi þau eru, auk þess sem rætt var um markaðsstarf og samstarf við Austurbrú. Fulltrúar Austurbrúar mættu á staðinn og kynntu áherslur í kynningu Austurlands sem áfangastaðar. Þar var meðal annars vísað í ferðavefinn east.is og að hægt sé að nálgast helstu upplýsingar um Fjarðabyggð með því að slá inn visitfjardabyggd.is.
Á fundinum var jafnframt rætt um áfangastaðaráætlun sem nú er í vinnslu fyrir árin 2026–2029 og farið yfir mannamót sem fram fór í janúar í Kórnum í Kópavogi. Þar kynntu 11 aðilar úr Fjarðabyggð þjónustu sína og vöruframboð. Þá var einnig farið yfir bæjarhátíðir sumarsins, sem eru átta talsins í ár.
Að lokum var rætt um stöðu mála varðandi skemmtiferðaskip og hvernig ferðaþjónustuaðilar sjá það fyrir sér til framtíðar. Fundurinn var afar góður og samtalið gagnlegt, með fjölbreyttum sjónarmiðum frá gestum.
