2016 og 2017 fór 84% alls úrgangs sem til féll í Fjarðabyggð til urðunar en eins og sést á meðfylgjandi skífuriti fór aðeins 63% úrgangs til urðunar í núna í febrúar.
Það sem vekur athygli er að aukningin er ekki einungis tilkomin vegna brúnu tunnunnar heldur eru íbúar einnig farnir að flokka meira í endurvinnslutunnuna.
Íbúar og fyrirtæki í Fjarðabyggð hefa tekið vel í aukna flokkun úrgangs og m.a. hefur verkefnastjóri umhverfismála hjá Fjarðabyggð haldið þrjár kynningar fyrir starfsmenn Fjarðaþrifa á Eskifirði. Hjá Fjarðaþrifum er lögð mikil áhersla á að starfsmenn séu vel að sér í flokkun og endurvinnslu.