Fara í efni
24.07.2026 Fréttir

Góður gangur í gerð nýrra ofanflóðavarna

Deildu

Framkvæmdir við ofanflóðavarnir við Nes- og Bakkagil í Neskaupstað hafa gengið vel að undanförnu og eru töluvert á undan upprunalegri tímaáætlun. Lokið er við uppsetningu 14 af 20 keilum og búið er að setja upp um 70% af þvergarði.  Í júní hófst að auki vinna við nýtt fjölskyldusvæði. Hefur jarðvinna og formun lands kringum nýja strandblakvelli verið í forgangi og hafa þeir formlega verið teknir í notkun undir æfingar.