Fara í efni
26.06.2026 Fréttir, Umhverfi

Grenndarstöðvar opnar í öllum kjörnum Fjarðabyggðar

Deildu

Búið er að taka í notkun grenndarstöðvar í öllum kjörnum Fjarðabyggðar og geta íbúar nú nýtt sér þær allan sólarhringinn.

Grenndarstöðvarnar eru ætlaðar fyrir flokkaðan úrgang til endurvinnslu og eru liður í því að bæta aðgengi íbúa að flokkun. Með stöðvunum verður auðveldara fyrir íbúa að koma verðmætum úrgangi í réttan farveg, þegar þeim hentar.

Grenndarstöðvarnar eru staðsettar við móttökustöðvar í öllum kjörnum nema á Breiðdalsvík, þar sem stöðin er við þjónustumiðstöðina á Breiðdalsvík.

Grenndarstöðvarnar eru á eftirfarandi stöðum:

  • Norðfjörður: Við móttökustöð, Naustahvammur 51
  • Eskifjörður: Við móttökustöð, Strandgata 6
  • Reyðarfjörður: Við móttökustöð, Hjallanes 8
  • Fáskrúðsfjörður: Við móttökustöð, Nesvegur 13
  • Stöðvarfjörður: Við móttökustöð, utan við þorpið
  • Breiðdalur: Við áhaldahús, Selnes 14

Á grenndarstöðvunum er hægt að skila eftirfarandi úrgangsflokkum:

  • pappír
  • textíl
  • plasti
  • málmi
  • gleri
  • kertavaxi
  • rafhlöðum

Íbúar eru hvattir til að ganga vel um grenndarstöðvarnar, flokka úrgang rétt og skilja ekki eftir úrgang utan við ílátin. Þannig nýtast stöðvarnar sem best og umhverfið helst snyrtilegt fyrir okkur öll.

Nánari upplýsingar um grenndarstöðvarnar og staðsetningar þeirra má finna á síðunni Grenndarstöðvar.