Frá og með deginum í dag tekur þjónustufyrirtækið Halló við símsvörun í aðalnúmeri Fjarðabyggðar, 470 9000. Símanúmer og þjónustutími haldast óbreytt og íbúar og aðrir sem hafa samband eiga áfram að fá sömu þjónustu og áður.
Símsvörun er opin á afgreiðslutíma skrifstofu Fjarðabyggðar, mánudaga til fimmtudaga kl. 10–16 og föstudaga kl. 10–12. Þar er hægt að fá upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins, bóka tíma hjá starfsfólki eða fá samband við viðeigandi starfsmann eftir því sem við verður komið.
Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarna mánuði og starfsfólk skrifstofunnar fengið kynningu á fyrirkomulaginu. Halló vinnur eftir skilgreindum verkferlum og upplýsingum frá sveitarfélaginu. Fylgst verður með þjónustunni með reglulegri yfirferð á erindum, tölfræði og tillögum að úrbótum.
Breytt verkefni á skrifstofunni
Hlutverk afgreiðslu og símsvörunar hefur breyst undanfarin ár með aukinni stafrænni þjónustu í gegnum íbúagátt, ábendingakerfi, nýjan vef og íbúaapp. Samhliða hefur dregið úr beinni afgreiðslu erinda í móttöku og síma. Sérhæfðari erindi fara jafnframt í auknum mæli beint til starfsfólks sem sinnir viðkomandi málaflokki.
Breytingarnar skapa starfsfólki afgreiðslu aukið svigrúm til að sinna skjalavörslu, skráningu og frágangi gagna ásamt umsjón með skjalakerfi, ábendingakerfi og öðrum mikilvægum verkefnum. Þörf fyrir þessa vinnu hefur vaxið og markmiðið er að nýta betur þekkingu og starfskrafta starfsfólks.
Straumur aðstoðar á vefnum
Nýr þjónustuhermir, Straumur, hefur einnig verið tekinn í notkun á heimasíðu Fjarðabyggðar og leysir fyrra netspjall af hólmi. Nafnið tengir saman hafið, hreyfingu og upplýsingaflæði og vísar bæði til umhverfis Fjarðabyggðar og hlutverks þjónustunnar.
Straumur notar gervigreind til að svara spurningum um þjónustu sveitarfélagsins út frá upplýsingum á vefnum og viðbótarupplýsingum sem honum hafa verið veittar. Þar á meðal eru upplýsingar um sorpmál, íbúagáttina og umsóknir í henni.
Straumur er nýr „starfsmaður“ og er, eins og gengur, enn að læra. Upplýsingar frá honum geta því verið takmarkaðar og hann getur gert mistök. Við hjálpum honum að læra og bæta sig eftir því sem reynslan eykst. Ef Straumur getur ekki svarað eða viðkomandi vill frekar spjalla við manneskju er hægt að færa samtalið til starfsmanns Halló á opnunartíma.
Nýtt móttökukerfi á næstu dögum
Á næstu dögum verður einnig tekið í notkun nýtt móttökukerfi frá Edico á skrifstofum Fjarðabyggðar. Gestir sem eiga bókaðan tíma eða fund munu geta tilkynnt komu sína á móttökuskjá með QR-kóða eða öðrum auðkennisupplýsingum sem þeir fá við bókun. Viðkomandi starfsmaður fær þá tilkynningu og tekur á móti gestinum.
Jafnframt er hægt að bóka viðtalstíma á heimasíðunni hjá þeim sem bjóða fasta viðtalstíma. Aðrir tímar verða áfram ákveðnir í samráði við starfsfólk.
