Fara í efni
01.09.2026 Fréttir, Íþróttir

Heilsudagar fyrir fólk 60 ára og eldra í Fjarðabyggð

Deildu

Í tilefni af Íþróttaviku standa Janus heilsuefling og Fjarðabyggð fyrir Heilsudögum fyrir fólk 60 ára og eldra í Fjarðabyggð.

Heilsudagarnir eru gott tækifæri til að kynna sér Janusarverkefnið og fræðast um mikilvægi hreyfingar, virkni og félagslegra tengsla á efri árum.

Fræðsla og heilsumælingar

Á Heilsudögunum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá:

  • Fræðandi fyrirlestrar um heilsu, vellíðan og mikilvægi þess að viðhalda virkni og félagslegum tengslum. Fyrirlestrarnir eru opnir öllum íbúum Fjarðabyggðar sem eru 60 ára og eldri.
  • Heilsumælingar fyrir þátttakendur í Janusarverkefninu, þar sem fylgst er með þáttum sem tengjast heilsu og líkamlegri færni.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í Janusarverkefninu eru hvött til að skrá sig sem fyrst svo hægt sé að tryggja þeim pláss í heilsumælingunum.

Fjölþætt heilsuefling í fimm byggðarkjörnum

Janus heilsuefling er fjölþætt heilsueflingarverkefni fyrir fólk 60 ára og eldra. Markmiðið er að efla heilsu, líkamlega færni og lífsgæði og styðja þátttakendur til að lifa sjálfstæðu og virku lífi sem lengst.

Verkefnið byggist á vísindalegum aðferðum, rannsóknum og markvissri þjálfun. Í Fjarðabyggð er boðið upp á Janus heilsueflingu í fimm byggðarkjörnum: Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

Þjálfunin fer fram undir handleiðslu þjálfara og er aðlöguð að getu og þörfum hvers þátttakanda.

Hvað felst í Janusarverkefninu?

Styrktarþjálfun tvisvar í viku
Markviss styrktarþjálfun undir leiðsögn þjálfara sem fylgist með þátttakendum og aðlagar æfingarnar að getu og þörfum hvers og eins.

Þolþjálfun einu sinni í viku
Þolþjálfun sem er hluti af heildstæðri þjálfunaráætlun verkefnisins.

Reglulegar heilsumælingar
Ítarlegar heilsumælingar eru framkvæmdar tvisvar á hverju tímabili. Þannig er hægt að fylgjast með breytingum og framförum þátttakenda yfir tíma.

Göngur og heilsutengdar uppákomur
Auk hefðbundinnar þjálfunar er boðið upp á reglulegar göngur og aðrar uppákomur sem styðja við virkni og félagsleg tengsl.

Fræðsla og stuðningur
Þátttakendur fá aðgang að rafrænum fræðsluerindum sérfræðinga, heilsupistlum og öðru fræðsluefni.

Heilsuapp og félagslegur stuðningur
Þátttakendur fá aðgang að heilsuappi sem er notað fyrir samskipti og utanumhald mælinga. Einnig er starfræktur lokaður Facebook-hópur fyrir þátttakendur.

Fólk 60 ára og eldra er hvatt til að nýta tækifærið, mæta á fræðslu Heilsudaganna og kynna sér Janusarverkefnið.

Skráning og nánari upplýsingar

Nýskráning í Janus heilsueflingu í Fjarðabyggð

Einnig má hafa samband við Hrafnhildi Njálsdóttur hjá Fjarðabyggð í tölvupósti á hrafnhildur.njalsdottir@fjardabyggd.is.