Fara í efni
27.04.2016 Fréttir

Heimsókn forstöðumanna félagsmiðstöðva til Stavanger

Deildu

Sveitarfélögin urðu vinabæir á sjöunda áratugnum en þá gerðist Neskaupstaður formlega aðili að norrænu vinabæjakeðjunni. Fjarðabyggð tók yfir vinabæjasamskiptin við sameiningu sveitarfélaganna 1998.

Hópurinn hlustaði á fjölmarga fyrirlestra auk þess sem félagsmiðstöðvar í borginni voru heimsóttar. Miklum tíma var einnig varið í umræðuhópa og vinnusmiðjur. Íslenski hópurinn notaði svo að sjálfsögðu tækifærið og skoðaði sig vel um í borginni og fór meðal annars í gönguferð upp á Preikestolen.

Mikil ánægja var með heimsóknina og fer hún klárlega í reynslubankann fyrir allt okkar fólk sem vinnur með ungmennum sveitarfélagsins í hverri viku. Hér má sjá videoblogg sem starfsfólkið hélt úti á meðan á heimsókninni stóð.

Hópur frá Stavanger kemur svo til Íslands á haustmánuðum til að kynna sér félagsmiðstöðvastarf í Fjarðabyggð. Verkefnið er styrkt af Evrópu unga fólksins.