Einn þáttur í þarfagreiningu og stefnumótun þegar kemur að málefnum aldraðra í Fjarðabyggð eru heimsóknir til félaga eldri borgara í öllum byggðarkjörnum, ásamt Breiðabliki og dagvistunar í Breiðdal.
Tilgangur þessara heimsókna er að kynna nýjar áherslur í málefnum eldra fólks á landsvísu ,,Gott að eldast" og óska eftir skoðunum þeirra og áherslum í þjónustu Fjarðabyggðar til framtíðar.
Á meðan heimsókninni stóð var boðið uppá sykraðar- og rjómapönnukökur.