Ráðherra og fylgdarliði var vel tekið á báðum stöðum en markmið heimsóknarinnar var m.a. að kynna sér starfsemi Sköpunarmiðstöðvarinnar en hún fékk tæplega 60 milljón króna styrk í ár frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu ásamt því að sveitarfélagið leggur fram fjárveitingar á móti framlagi ráðuneytisins.
Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði hefur verið starfrækt í átta ár og er hugsjónastarf sem ætlað er að stuðla að atvinnusköpun og menningu á Stöðvarfirði.Styrkveitingar nýtast til uppbyggingar aðstöðu í húsnæðinu og viðhalds þess. Þar eru starfræktar vinnustofur fyrir gestalistamenn, tónleikasalur og hljóðver. Sköpunarmiðstöðin var m.a. handhafi Landstólpans 2018.