Hvernig breyttist líf íslensks æskufólks á hernámsárunum og hvenær varð unglingurinn til sem sérstakur þjóðfélagshópur?
Þessum spurningum og fleirum svarar Leifur Reynisson sagnfræðingur á bókarkynningu í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði laugardaginn 28. nóvember kl. 17. Þar fjallar hann um nýútkomna bók sína, Hernámsæskan, og sýnir ljósmyndir sem varpa ljósi á þær miklu samfélagsbreytingar sem urðu á Íslandi á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Viðburðurinn er á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Leifur hefur lengi haft áhuga á sögu stríðsáranna en á síðari árum hefur hann einkum beint sjónum að upplifun almennings. Hann er með MA-gráðu í sagnfræði og hefur stundað nám við Háskóla Íslands, Kaupmannahafnarháskóla og Sussexháskóla í Bretlandi. Hann hefur meðal annars fengist við kennslu, ritstörf og útvarpsþáttagerð.
„Ég fór að pæla í hernámsárunum á Íslandi út frá unglingamenningunni sem ég hafði rannsakað nokkuð, og þá sérstaklega '68-kynslóðina. Þegar ég fór að velta fyrir mér upphafi unglingamenningar hérlendis áttaði ég mig á að ræturnar liggja aftur til hernámsáranna,“ segir Leifur.
Nýr heimur opnaðist ungu fólki
Á hernámsárunum bötnuðu lífskjör Íslendinga verulega. Ungt fólk átti auðveldara með að fá launaða vinnu, afla sér menntunar og sækja skemmtanir. Jafnframt barst hingað erlend dægurmenning með hermönnum, ekki síst bandarísk tónlist og kvikmyndir.
Leifur bendir á að áður hafi ungt fólk gjarnan gengið inn í heim fullorðinna við fermingu. Á stríðsárunum og í kjölfar þeirra lengdist æskuskeiðið og ungmenni fóru í auknum mæli að mynda eigin menningu, meðal annars í skólum, sjoppum, kaffihúsum og á skemmtistöðum.
Þótt hernámið hafi fært mörgum ný tækifæri var upplifun fólks af stríðsárunum afar ólík.
„Margir töluðu um ævintýratíma, hernámsliðið braut upp kyrrláta tilveru með margvíslegum hætti,“ segir Leifur. Aðrir hafi hins vegar lifað í stöðugum ótta. Honum hafi þótt sérstaklega athyglisvert hversu margir lýstu hernámsárunum sem frelsandi tíma þegar heimurinn stækkaði og ný tækifæri opnuðust.
Stríðsárin á Austfjörðum
Hernámið setti mikinn svip á mannlífið á Austfjörðum, ekki síst á Reyðarfirði og Seyðisfirði þar sem herinn hafði umfangsmiklar bækistöðvar. Á Reyðarfirði, þar sem aðeins bjuggu um 300 manns við upphaf hernámsins, varð mikil breyting á atvinnu- og menningarlífi. Dansleikir, kvikmyndasýningar og kaffihús urðu hluti af nýjum veruleika. Áhrifin náðu þó víðar um fjórðunginn, eins og kemur fram í frásögnum fólks sem Leifur ræddi við.

„Mér dettur fyrst í hug saga af dreng sem ólst upp á Neskaupsstað en þar fór heldur lítið fyrir hernum. Hann hafði mikinn áhuga á stríðinu og fannst hann fara mikils á mis þar sem fjöldi hermanna var í nærliggjandi byggðum, það er Seyðisfirði og Reyðarfirði. Hann sá hins vegar til þýskra flugvéla og herskip sigldu oft um. Eitt sinn var hann í fótbolta með félögum sínum þegar skipalest birtist og varð ekkert lát á skipafjöldanum allan þann tíma sem þeir spörkuðu í boltann. Þannig höfðu flestir eitthvað af stríðinu að segja, jafnvel þar sem herinn var ekki með viðbúnað.
Þá man ég eftir alþýðustúlku sem ólst upp á Eskifirði. Hana langaði til að ganga menntaveginn og velmegun stríðsáranna varð til þess að hún gat farið í alþýðuskólann á Eiðum og svo í MA. Hún leit á framhaldsnám sem tækifæri til að öðlast sjálfstætt líf. Bæði voru meðal viðmælenda minna.“
Á bókarkynningunni mun Leifur fjalla um upplifun almennings af hernáminu og hvernig íslensk unglingamenning tók að mótast á þessum árum. Hann segir frásögnina verða myndríka enda skipi ljósmyndir stóran sess í bókinni.
Bókarkynningin fer fram í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði laugardaginn 28. nóvember kl. 17 og er á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar. Bókin verður til sölu á staðnum. Aðgangur ókeypis og öll eru velkomin.
