Guðríður Gunnlaugsdóttir og Þröstur Þorgrímsson að Sæbergi 19 á Breiðdalsvík og Síldarvinnslan í Neskaupstað hljóta umhverfisviðurkenningar Fjarðabyggðar árið 2026. Sæberg 19 hlýtur viðurkenningu í flokki einbýlishúsalóða en Síldarvinnslan í flokki fyrirtækjalóða, með sérstakri áherslu á minningarreit fyrirtækisins.
Skipulags- og framkvæmdanefnd bárust nokkrar tilnefningar í ár og var ákvörðun nefndarinnar einróma í báðum flokkum.
„Það er mikil ástríða og metnaður að baki þessum fallegu svæðum. Guðríður og Þröstur hafa hlúð að garðinum sínum í áratugi og hjá Síldarvinnslunni hefur verið skapaður fallegur og friðsæll minningarreitur sem er mikil prýði fyrir Norðfjörð. Báðir viðurkenningarhafar sýna hvað góð umhirða og alúð geta skilað miklu og eru vel að viðurkenningunum komnir,“ segir Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður skipulags- og framkvæmdanefndar.
Garður sem hefur vaxið og dafnað í sex áratugi
Guðríður og Þröstur reistu húsið að Sæbergi 19 fyrir um 60 árum og hófust fljótt handa við að gera garðinn umhverfis það snyrtilegan. Síðan hafa þau lagt mikla vinnu og alúð í ræktun hans og umhirðu.
Í garðinum er fjölbreyttur gróður, þar á meðal fjölmargar tegundir trjáa, runna og blóma. Garðhús, hlaðnir steinar og gosbrunnur setja einnig svip á umhverfið.

Í mati nefndarinnar er lóðinni lýst sem fallegri, vel skipulagðri og vel við haldið. Metnaður og hugsun einkenni það sem þar hefur verið gert og ástríða eigendanna fyrir snyrtilegu umhverfi sé áþreifanleg.
Friðsæll minningarreitur og umhirða til fyrirmyndar
Viðurkenning Síldarvinnslunnar beinist sérstaklega að minningarreit fyrirtækisins í Neskaupstað. Reiturinn var vígður 25. ágúst 2022 og stendur á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar sem eyðilagðist í snjóflóðinu 20. desember 1974.
Ákvörðun um gerð reitsins var tekin í tilefni af 60 ára afmæli Síldarvinnslunnar árið 2017. Hann er helgaður sögu fyrirtækisins og minningu þeirra sem látist hafa við störf hjá því. Hönnuður reitsins er Kristján Breiðfjörð Svavarsson en tillaga hans var valin í samkeppni um hönnun svæðisins.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, sem hafði umsjón með framkvæmdinni, og Eiríkur Karl Bergsson, sem stýrir umhverfishópi Síldarvinnslunnar, tóku við viðurkenningunni að viðstöddu starfsfólki Síldarvinnslunnar.
Nefndin horfir jafnframt til umhirðu lóða, bygginga og skipa Síldarvinnslunnar. Á hverju sumri starfar umhverfishópur ungmenna hjá fyrirtækinu sem sinnir lóðum þess og útliti mannvirkja. Sú vinna hefur skilað sýnilegum árangri og er hluti af þeirri umhyggju fyrir umhverfinu sem viðurkenningin endurspeglar.
