Eða jólasveinarnir týndu öllum gjöfunum? Kannski leynist saga um álf, furðudýr eða óvæntan gest við jólaborðið í huganum á þér?
Nú er tækifærið til að koma henni á blað. Opið er fyrir innsendingar í jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar og allir nemendur í 1.–10. bekk grunnskóla sveitarfélagsins eru hvattir til að taka þátt.
Hugmyndaflugið má fara á flug og persónurnar geta verið af öllum stærðum og gerðum, úr þessum heimi eða öðrum. Eina skilyrðið um efnið er að sagan tengist jólunum, áramótunum eða hátíðunum í kringum þau með einhverjum hætti.
Síðasti skiladagur er föstudagurinn 4. desember.
Bókavinningar fyrir bestu sögurnar
Veitt verða verðlaun fyrir bestu sögurnar í þremur aldurshópum: yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Í verðlaun eru bókavinningar frá Bjarti – Veröld, Sögum útgáfu og Óðinsauga.
Sigurvegarar verða tilkynntir 10. desember og verðlaunaafhending fer fram á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Vinningssögurnar birtast síðan á heimasíðu sveitarfélagsins í aðdraganda jóla.
Svona tekur þú þátt
- Skrifaðu frumsamda sögu á íslensku, 150–1.500 orð að lengd.
- Láttu söguna tengjast jólunum, áramótunum eða hátíðunum í kringum þau.
- Myndskreytingar mega gjarnan fylgja.
- Lestu söguna vel yfir og hugaðu að stafsetningu áður en þú sendir hana inn.
- Sendu söguna sem tölvuskjal eða ljósmynd af handskrifuðum texta á menningarstofa@fjardabyggd.is.
Með sögunni þurfa að fylgja nafn höfundar, skóli og bekkur, ásamt nafni, netfangi og símanúmeri forráðamanna.
Náðu í blað og blýant eða opnaðu tölvuna. Við hlökkum til að sjá hvert jólaævintýrin ykkar leiða okkur!
