Hvað hefur áunnist á fimm árum og hvað tekur við? Það verður til umræðu á lokafundi verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður í Grunnskóla Stöðvarfjarðar miðvikudaginn 2. desember klukkan 17:00. Íbúar og aðrir sem láta sér annt um Stöðvarfjörð eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni.
Á fundinum segja nokkrir styrkþegar frá verkefnum sem þeir hafa hrint í framkvæmd með stuðningi Sterks Stöðvarfjarðar. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og fulltrúar Byggðastofnunar ávarpa fundinn. Þar verður einnig rætt um hvaða verkefni og áherslur íbúar vilja sjá í forgangi á næstu árum.

Sterkur Stöðvarfjörður er hluti af Brothættum byggðum og hefur stutt við verkefni að frumkvæði íbúa. Valborg Ösp Árnadóttir Warén hefur stýrt verkefninu í samstarfi við íbúa og verkefnisstjórn. Fundurinn markar tímamót því nú lýkur þátttöku Byggðastofnunar í verkefninu eftir fimm ára samstarf.
