Fara í efni
05.10.2026 Fréttir

Íbúagáttin – umsóknir, reikningar og málin þín á einum stað

Deildu

Í íbúagátt Fjarðabyggðar getur þú sótt um fjölbreytta þjónustu sveitarfélagsins, fylgst með afgreiðslu mála þinna og skoðað reikninga og gjöld. Þar finnur þú einnig upplýsingar um hitaveitunotkun og getur tilkynnt notendaskipti vegna hitaveitu.

Sótt um þjónustu og fylgst með málum

Undir „Umsóknir“ eru rafrænar umsóknir vegna fjölmargra þjónustuþátta. Þar má meðal annars sækja um heimaþjónustu, húsnæðisstuðning, íþrótta- og tómstundastyrki, leyfi til gæludýrahalds og byggingarleyfi.

Undir „Málin mín“ getur þú fylgst með afgreiðslu mála sem þú hefur sent inn.

Reikningar og upplýsingar um veitur

Í gáttinni getur þú skoðað reikninga og gjöld, meðal annars vegna hitaveitu og frístunda.

Undir flipanum „Orkan mín“ finnur þú helstu upplýsingar um reikninga, notkun og annað sem varðar veitur. Ef þú þarft að tilkynna notendaskipti vegna hitaveitu er eyðublaðið „Beiðni um notendaskipti vegna hitaveitu“ að finna undir „Umsóknir“ í flokknum „Skipulags- og framkvæmdasvið“.

Við hvetjum íbúa til að kynna sér íbúagáttina og nýta sér þjónustuna.

Hvernig skrái ég mig inn?

Innskráning í íbúagáttina fer fram í gegnum Ísland.is. Til að skrá þig inn þarftu rafræn skilríki, Auðkennisappið eða rafræn skilríki á korti.

Opna íbúagátt Fjarðabyggðar