Fara í efni
10.06.2026 Fréttir, Menning

Innsævi í fullum gangi: Kvæðakórinn í fjörunni, ball á Stöðvarfirði og svo margt fleira

Deildu

Listahátíðin Innsævi leggur nú undir sig Fjarðabyggð og er hátíðarandinn í algleymingi. Fjöldi fjölbreyttra viðburða hefur þegar litið dagsins ljós, en dagskráin er fjarri því búin og fram undan eru einstakar menningarupplifanir þar sem austfirskar sagnir og samtímalist mætast.

Upplifun um helgina: Kvæðaball á Stöðvarfirði

Um helgina, laugardaginn 13. júní kl. 20:00, verður slegið í mikið Kvæðaball í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði.

Viðburðurinn er innblásinn af fyrri verkefnum Kvæðakórsins, en síðasta haust kom kórinn fram á Dögum myrkurs í Bragganum á Reyðarfirði við frábærar undirtektir. Nú er stefnan sett á Stöðvarfjörð og vonast Menningarstofa eftir frábærri þátttöku á þessa einstöku kvöldstund þar sem kvæði, sagnamiðlun, kvöldverður og samstarf við austfirskt tónlistarfólk fléttast saman.

Kvæðaballið fagnar austfirskum þjóðsögum í samtímalistrænu samhengi með flutningi, samtali, leikrænum þáttum og handgerðum hlutum úr náttúrulegum og endurunnum efnivið. Kvöldið er hugsað sem hlý og skapandi samvera sem tengir saman aðkomu listafólk, heimafólk og samfélagið allt. Aðgöngumiði er 3.500 kr.

Fleiri viðburðir á Innsævi næstu daga:

Kvæðakórinn í fjörunni á Fáskrúðsfirði

Sem upphitun fyrir ballið mun Kvæðakórinn koma fram fimmtudaginn 11. júní kl. 19:00 á bryggjunni fyrir aftan Franska spítalann á Fáskrúðsfirði. Flutningurinn fer fram utandyra þar sem verkið sækir innblástur í austfirskar sagnir og þjóðtrú, meðal annars með vísunum í sögur af Skrúðsbóndanum. Raddir, staður og þjóðsögur fléttast hér saman í áhrifaríka upplifun. Aðgangur er gjaldfrjáls.

Skapandi jurtanámskeið með Julie Lie

Hönnuðurinn Julie Lie leiðir röð skapandi jurtanámskeiða á milli kl. 17:00 og 20:00, þar sem náttúruleg efni, sjálfbærni og handverk mætast:

  • 12. júní – Grunnskóli Reyðarfjarðar: Vatnslitir búnir til úr plöntum.
  • 15. júní – Skrúður, Fáskrúðsfirði: Ull þæfð í sjálfbæra ræktunarpotta.
  • 18. júní – Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði: Unnið með shibori textílaðferðir og mynsturgerð.

Verð er 5.000 kr. fyrir stakt námskeið eða 15.000 kr. fyrir þau öll. Skráning: menningarstofa@fjardabyggd.is.

Sýningarsamtal í Þórsmörk: Austurland frá Glettingi / Jusqu’à Paris

Sunnudaginn 14. júní á milli kl. 15:00 og 17:00 opnar Friðgeir Kristjánsson myndlistarsýningu sína í Þórsmörk, Neskaupstað (Þiljuvöllum 11). Á sýningunni mætast verk Friðgeirs, sem byggja á persónulegri reynslu hans af Austurlandi, og teikningar franska listamannsins Victor, sem sýna hans ímyndunarafl um staðinn án þess að hafa komið hingað áður. Aðgangur er gjaldfrjáls.

Menningarstofa Fjarðabyggðar hvetur alla íbúa til þess að fjölmenna, njóta listarinnar og skapa góðar minningar saman!