Miðasala á tónleika Stefáns Ragnars og glott.fest fer fram á tix.is.

Listahátíðin Innsævi verður haldin dagana 1.–20. júní með fjölbreyttri dagskrá víðs vegar um Fjarðabyggð. Hátíðin býður íbúum og gestum að upplifa myndlist, tónlist, samveru og náttúru í skapandi samtali við umhverfið, sögurnar og fólkið á svæðinu.
Innsævi er skipulögð af Menningarstofu Fjarðabyggðar og í ár er lögð rík áhersla á að brjóta niður mörk á milli ólíkra listforma, kynslóða og samfélagshópa. Á hátíðinni fléttast saman myndlist, tónlist, ljóð, handverk, vegglist, þjóðsögur, jaðarmenning og skapandi grasrót.
Í sjónrænu útliti hátíðarinnar í ár endurspeglast jafnframt samspil manns og náttúru, þar sem árfarvegir Fjarðabyggðar verða að tákni fyrir flæði, tengsl og skapandi kraft samfélagsins.
Samstarfsaðili hátíðarinnar er Listahátíð í Reykjavík og fangar slagorð hennar anda Innsævis vel: „List er ekki forréttindi fárra heldur mannréttindi allra.“
„Ég er voða hreikin af dagskránni í ár því hún nær að halda utan um alla þá grósku sem er að finna í menningarlífi Fjarðabyggðar og setja hana í samhengi við það sem er að gerjast annars staðar á landinu og jafnvel utan landsteinanna. Það hefur verið virkilega skemmtilegt að kynnast skapandi landslaginu hér betur í gegnum alla þessa ólíku samstarfsaðila sem koma að hátíðinni og auðvitað mikil forréttindi að vera í nánu samtali við listafólkið sjálft,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Innsævis.
Magnús Pálsson fyrsti Listamaður Fjarðabyggðar
Rauður þráður í dagskrá Innsævis í ár er tileinkaður Magnúsi Pálssyni, einum áhrifamesta brautryðjanda íslenskrar samtímalistar, sem fæddist á Eskifirði árið 1929.
Við setningu hátíðarinnar verður Magnús formlega útnefndur fyrsti Listamaður Fjarðabyggðar fyrir tímabilið 2026–2028. Útnefningin markar upphaf nýrrar stefnu sveitarfélagsins um eflingu lista og varðveislu menningararfs.
Verk Magnúsar spanna meðal annars gjörningalist, hljóðverk og hugmyndalist og hefur listræn arfleifð hans haft mikil áhrif á íslenska samtímalist. Arfleifð hans verður leiðarstef í sýningunni Óður til niðarins í Gamla barnaskólanum á Eskifirði, þar sem yngri kynslóðir samtímalistamanna sýna verk sem eiga í samtali við hugmyndaheim Magnúsar.
Þá verður heimildarmyndin Á Skjön, sem fylgir Magnúsi eftir í sköpunarferlinu, sýnd í Valhöll á Eskifirði.
Fjölbreytt dagskrá um alla Fjarðabyggð
Dagskrá Innsævis nær til margra staða í Fjarðabyggð og eru flestir viðburðir hátíðarinnar ókeypis og opnir öllum.
Meðal dagskrárliða eru tónleikar, sýningar, vinnustofur, fjölskylduviðburðir, ráðstefna, vegglistaverk, jurtanámskeið og viðburðir tengdir sjómannadeginum.
Flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson snýr aftur á æskuslóðirnar og heldur tónleika í Eskifjarðarkirkju þann 2. júní ásamt Sigurgeiri Agnarssyni og Liam Kaplan.
Þann 5. júní fer tónlistarkvöldið glott.fest fram í Neskaupstað og frá 6. júní breytist Skrúður á Fáskrúðsfirði í opið vinnurými í umsjón tattoo.samkomu, þar sem fimm innlendir og erlendir listamenn sýna handverk sitt.
Í tilefni sjómannadagsins 7. júní verður frítt inn á öll sjóminjasöfn í Fjarðabyggð. Harmonikkufélag Norðfjarðar leikur við dorgveiðikeppni og ljósmyndasýningin Kringum Gerpi opnar í Randulffssjóhúsi.
Á Stöðvarfirði vinna listafólkið Edda Karólína og Sindri Dýrason að stóru vegglistaverki sem afhjúpað verður 13. júní. Þá leiðir Julie Lie skapandi jurtanámskeið á ólíkum stöðum á svæðinu.
Skapandi Austurland og fjölskylduviðburðir
Dagana 8.–15. júní verður boðið upp á fjölskylduopnanir á bókasöfnum í Fjarðabyggð með skapandi afþreyingu og föndri fyrir börn og fjölskyldur.
Fimmtudaginn 11. júní standa menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Austurbrú og Menningarstofa Fjarðabyggðar fyrir ráðstefnunni Skapandi Austurland á Eskifirði. Þar verður fjallað um sóknarfæri, sjálfbærni og framtíð lista og skapandi greina á landsbyggðinni.
Sama dag opnar málverkasýning í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar með verkum eftir Önnu Ólafar Jans og Louisu Matthíasdóttur.
Merki hátíðarinnar sækir innblástur í farvegi Fjarðabyggðar
Sjónrænt útlit Innsævis í ár var hannað af Arnari Hjartarsyni, sem sótti innblástur í upprunalega hönnun fyrstu hátíðarinnar sem haldin var árið 2020, þegar Camille Lacroix sá um umbrot og hönnun.
Einkennandi fyrir hönnunina í ár eru árfarvegirnir sem streyma um byggðarkjarna Fjarðabyggðar. Sú mynd endurspeglar jafnframt eina af grunnhugmyndum hátíðarinnar í ár; samspil manns og náttúru og samband okkar við staðina og umhverfið sem við búum í.
List, landslag og samfélag
Innsævi listahátíð er í senn hátíð, samtal og vitundarvakning um þau verðmæti sem búa í listsköpun á landsbyggðinni. Menningarstofa Fjarðabyggðar býður íbúum og gestum að staldra við, hlusta nánar og upplifa hversdaginn í nýju ljósi í gegnum list og sköpun.
Verið hjartanlega velkomin á Innsævi í Fjarðabyggð í júní – þar sem landslag, list og samfélag hreyfast í sama takti.