Unnið hefur verið að greiningunni að undanförnu, og hafa starfsmenn Fjarðabyggðar og Austurbrúar komið saman að þeirri vinnu. Markmiðið með þeirri vinnu er að gefa greinargóða mynd af því sem sveitarfélögin hafa upp á bjóða, í dag og til framtíðar, með því að taka saman upplýsingar sem gagnast geta bæði núverandi og mögulegum íbúum, auk fyrirtækja og stofnana sem leita staðsetningar til uppbyggingar og þróunar.
Um er að ræða nokkuð yfirgripsmikla samantekt sem fjallar m.a. um einkenni hvers bæjarkjarna, umhverfi, samgöngur, samfélag, þjónustu, vinnumarkaðinn og þau fjölmörgu tækifæri sem bjóðast í fjölbreyttu sveitarfélagi.
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir um greininguna: "Þessi innviðagreining er einskonar samfélagslýsing sem við vonum að gefi góða mynd af kraftmiklu samfélagi sem hefur alla burði til að vaxa og dafna um ókomna tíð."
Innviðagreiningu Fjarðabyggðar 2021 má finna með því að smella hér.