Fara í efni
02.07.2024 Fréttir

InstaVolt opnar 16 hraðhleðslustöðvar í Fjarðabyggð

Deildu

"Þetta er mikil lyftistöng fyrir okkur í þjónustu við rafbílaeigendur og ferðamenn. Með þessum samningi erum við að gera rafbílanotendum kleift að ferðast um Fjarðabyggð og verja tíma sínum í öllum byggðakjörnum auk þess sem þetta er mikilvægur áfangi í orkuskiptunum," segir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð.

,,Við hjá InstaVolt erum að vinna í því að koma upp öflugu hraðhleðsluneti um allt Ísland og samstarf okkar við Fjarðabyggð er stór hluti af þeirri vegferð. Við erum spennt að setja upp stöðvar á sex lykilstöðum og hlökkum til samstarfsins. Við höfum trú á framtíð rafbílanna og það er frábært að sjá að Fjarðabyggð gerir það líka," segir Mark Stannard, hjá InstaVolt.

Með opnun hraðhleðslustöðvanna í Fjarðabyggð eru hraðhleðslustöðvar InstaVolt á Íslandi orðnar 48 talsins. Fyrirtækið áætlar að opna 300 hraðhleðslustöðvar á Íslandi á næstu tveimur árum.

InstaVolt leggur áherslu á auðvelt aðgengi að stöðvunum þar sem greitt er fyrir hleðsluna með greiðslukorti eða síma. Ekki þarf að nota sérstaka greiðslulykla eða app.