Fara í efni
06.10.2026 Fréttir, Bæjarráð

Íslendingadagar í Gravelines og 35 ára vinabæjasamstarf

Deildu

Fulltrúar Fjarðabyggðar og Franskra daga tóku þátt í Íslendingadögum í Gravelines í Frakklandi dagana 25.–27. september. Hátíðin markaði jafnframt 35 ára vinabæjasamstarf Fáskrúðsfjarðar og Gravelines.

Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs, og Stefán Þór Eysteinsson bæjarfulltrúi voru fulltrúar Fjarðabyggðar í ferðinni. Óðinn Magnason og Björg Hjelm voru fulltrúar Franskra daga og Anna Pouet annaðist túlkun.

Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt. Þar voru meðal annars sýningar um vinabæina og minningu sjómanna, hefðbundinn markaður, sögur og söngvar tengdir sjónum og skrúðgöngur í sögulegum búningum. Þá var afhjúpaður skjöldur til að vekja athygli á vinabæjasamstarfinu.

Minning sjómanna skipaði sérstakan sess í dagskránni. Boðið var upp á siglingu þar sem krans var lagður í sjó og á sunnudeginum var dagskrá við minnismerki sjómanna í Les Huttes. Þar var einnig haldið sameiginlegt hátíðarmáltíð, „Banquet des Islandais“.

Í heimsókninni var gert ráð fyrir fundi með borgarstjóra Gravelines og kynningu á bænum, auk samtals um framtíðarmöguleika í vinabæjasamstarfinu. Á hátíðarkvöldverði var 35 ára samstarfi við Fáskrúðsfjörð og Dartford fagnað, ásamt 40 ára samstarfi Gravelines og Biblis.

„Þetta var vel heppnuð ferð í alla staði. Gravelines leggur mikinn metnað í hátíðina og tekur vel á móti okkur Íslendingum. Það er gaman að taka þátt í dagskránni með þeim,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs.

Í þakkarpósti frá fulltrúa Gravelines voru færðar kveðjur frá Bertrand Ringot borgarstjóra, Patriciu Jeziorowski og Michèle Kerckhof. Þau þökkuðu fulltrúunum fyrir komuna og ánægjulegar samverustundir. Þá kom fram að tíminn saman virtist alltaf of stuttur, en ánægjulegt hefði verið að fá tækifæri til að ræða við Ragnar og Stefán.

Ljósmyndir: Ville de Gravelines