Sameiginlegur íþrótta- og gleðidagur grunnskólanna í Fjarðabyggð var haldinn á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 13. maí. Um 250 nemendur í 7.–10. bekk tóku þátt í deginum, sem er samstarfsverkefni grunnskólanna og starfsfólks tómstundamála í Fjarðabyggð.
Dagskrá íþróttadagsins fór fram yfir daginn í skólanum, á skólavelli og í íþróttahúsi. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum viðburðum, hreyfingu og leikjum, auk þess sem þau fengu tækifæri til að hittast og blanda geði þvert á skóla.

Deginum lauk með lokaballi félagsmiðstöðvanna í Fjarðabyggð í félagsheimilinu Skrúð. Þar var mikil stemning og komu fram DJ Sakki, Partývélin, Daniil og Patr!k við góðar undirtektir. Viðburðurinn heppnaðist einstaklega vel. Nemendur tóku virkan þátt í skipulagðri dagskrá, veðrið lék við gesti og starfsfólk og dagurinn einkenndist af gleði, samveru og góðum skólabrag.


