Walker lagði grunn að jarðfræðikortlagningu eldri berggrunns Íslands. Austfirðir skipuðu stóran sess í rannsóknum hans og Breiðdalsvík var ein af bækistöðvum hans þegar hann starfaði hér á landi. Hann fæddist 2. mars 1926 og lést árið 2005.
Vettvangsferðir um rannsóknarsvæði Walkers
Ráðstefnan hefst miðvikudaginn 30. september með vettvangsferð um Eskifjörð, Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð. Á föstudeginum verður farið um Breiðdal, Berufjörð, Djúpavog og Lón. Ferðirnar eiga að kynna jarðfræði Austurlands fyrir ráðstefnugestum, meðal annars þeim sem þekkja svæðið síður.
Með í för verða jafnframt jarðfræðingar sem hafa langa reynslu af rannsóknum á Austurlandi. Þar á meðal eru Guðmundur Ómar Friðleifsson, Hjalti Franzson, Birgir Vilhelm Óskarsson, María Helga Guðmundsdóttir, Steffi Burchardt og Christian Tegner.
Horft til framtíðar rannsókna
Dagskráin fer fram fimmtudaginn 1. október í Frystihúsinu á Breiðdalsvík. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, ávarpar og setur ráðstefnuna. Fjallað verður um ævi og störf Walkers og flutt erindi um eldvirkni, kviku og jarðbyggingu á Íslandi og sambærilegum svæðum.
Heiðursgestir ráðstefnunnar eru Stephen Self og Stephen Sparks, tveir fyrrverandi doktorsnemar Walkers. Meðal annarra gesta eru jarðvísindamennirnir Gillian Foulger, Knútur Árnason og Sverre Planke.
Ungir jarðvísindamenn og framhaldsnemar frá Íslandi og öðrum löndum taka einnig þátt. Eitt af markmiðum ráðstefnunnar er að skapa umræður milli kynslóða vísindafólks um möguleika og stefnu rannsókna á jarðfræði Austurlands, Íslands og Norður-Atlantshafssvæðisins.
Að undirbúningi ráðstefnunnar koma Þorvaldur Þórðarson, Bjarni Gautason, Ármann Höskuldsson, Bryndís Fiona Ford og Jóna Árný Þórðardóttir. Verkefnið hlaut styrki frá Uppbyggingarsjóði Austurlands og Samfélagssjóði Alcoa Fjarðaáls. Jarðfræðafélag Íslands styður einnig við verkefnið.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og dagskrá hennar er að finna í viðburðardagatali Fjarðabyggðar
