Fara í efni
27.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

Jólaljós, bókahátíðir og jólamarkaðir í Fjarðabyggð

Deildu

Rithöfundalestin kemur við á Fáskrúðsfirði, Norðfirði og Reyðarfirði um helgina, jólamarkaður verður í Dalahöllinni og jólaljósin verða tendruð á jólatrjám í öllum sjö byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Í næstu viku heldur Kór Fjarðabyggðar tónleika í Eskifjarðarkirkju og á laugardag verður jóla- og listamarkaður á Reyðarfirði.

Rithöfundalestin og jólamarkaður um helgina

Rithöfundalestin kemur í Franska safnið á Fáskrúðsfirði í kvöld, föstudaginn 27. nóvember, kl. 20:00. Þar gefst gestum kostur á að hlusta á höfunda lesa úr bókum sínum, spjalla við þá og fá bækur áritaðar. Dagskrá Rithöfundalestarinnar

Á laugardaginn verður jólamarkaður í Dalahöllinni á Norðfirði kl. 12:00–16:00 með sölubásum og tónlist. Kl. 13:00 lesa Bergrún Íris Sævarsdóttir og Særún Hlín Laufeyjardóttir úr bókum sínum fyrir börn og ungmenni. Kl. 14:00 hefst bókahátíð Rithöfundalestarinnar á efri hæð hallarinnar. Dagskrá jólamarkaðarins

Síðar sama dag, kl. 17:00, kynnir Leifur Reynisson sagnfræðingur bókina Hernámsæskan í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði. Þar segir hann frá lífi ungmenna á stríðsárunum í máli og myndum. Aðgangur er ókeypis. Nánar um bókarkynninguna

Jólaljósin tendruð 28.–29. nóvember

Á laugardaginn verða ljósin tendruð á jólatrénu á Stöðvarfirði. Á sunnudaginn verða ljósin tendruð í hinum sex byggðarkjörnunum.

  • Laugardagur 28. nóvember kl. 17:00 – Stöðvarfjörður
  • Sunnudagur 29. nóvember kl. 16:00 – Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður og Mjóifjörður
  • Sunnudagur 29. nóvember kl. 17:00 – Breiðdalsvík, Reyðarfjörður og Neskaupstaður

Tónleikar á Eskifirði og listamarkaður á Reyðarfirði

Þriðjudaginn 1. desember kl. 18:00 heldur Kór Fjarðabyggðar fullveldis- og jólatónleika í Eskifjarðarkirkju. Með kórnum koma fram Barnakór Fjarðabyggðar, einsöngvarar og hljóðfæraleikarar. Miðar fást á Tix.is. Nánar um tónleikana

Laugardaginn 5. desember kl. 12:00–15:00 verður jóla- og listamarkaður í Bragganum við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Þar bjóða listamenn og handverksfólk úr Fjarðabyggð meðal annars upp á keramik, teikningar og handverk. Nánar um jóla- og listamarkaðinn

Fylgist með því sem er fram undan í viðburðadagatali Fjarðabyggðar.