Fara í efni
20.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

Jólamarkaðir, aðventukvöld og Rithöfundalestin í Fjarðabyggð

Deildu

Guðni Th. Jóhannesson fjallar um landhelgismálið í Egilsbúð í kvöld og á sunnudag verður jólamarkaður á Stöðvarfirði. Í næstu viku kemur Rithöfundalestin við í þremur byggðarkjörnum og fyrirtæki á Reyðarfirði bjóða til aðventukvölds. 

Um helgina 20.–22. nóvember

Föstudaginn 20. nóvember kl. 20.00 kynnir Guðni Th. Jóhannesson bók sína um landhelgismálið í Egilsbúð í Neskaupstað. Þar fjallar hann meðal annars um hlutverk Lúðvíks Jósepssonar í átökunum við Breta. 

Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.00–16.30 verður jólamarkaður í skólahúsinu á Stöðvarfirði. 

Í næstu viku 23.–29. nóvember

Miðvikudaginn 25. nóvember leiðir Bergrún Íris Sævarsdóttir ritlistarsmiðjur á bókasafninu á Reyðarfirði kl. 15.00 og á bókasafninu á Fáskrúðsfirði kl. 17.00. Þátttaka er ókeypis og skráning fer fram á menningarstofa@fjardabyggd.is.

Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 19.30–21.30 verður aðventukvöld á Reyðarfirði. Hárbankinn, Fjarðabásar, Krónan og Lauf heilsunudd taka þátt og gestum er boðið að rölta á milli fyrirtækjanna.

Föstudaginn 27. nóvember kl. 20.00 verður bókahátíð Rithöfundalestarinnar í Franska safninu á Fáskrúðsfirði. 

Laugardaginn 28. nóvember verður jólamarkaður í Dalahöllinni á Norðfirði kl. 12.00–16.00. Þar verður upplestur fyrir börn og ungmenni kl. 13.00 og bókahátíð Rithöfundalestarinnar kl. 14.00. Síðar sama dag, kl. 17.00, kynnir Leifur Reynisson bókina Hernámsæskan í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði. Aðgangur að bókarkynningunni er ókeypis.

Nánari upplýsingar má finna í viðburðadagatali Fjarðabyggðar.