Fara í efni
17.11.2026 Fréttir, Velferð og félagsþjónusta

Jólasjóðurinn í Fjarðabyggð – stuðningur fyrir jólin

Deildu
Natural christmas decoration on old rustic wood with festive lights

Jólasjóðurinn í Fjarðabyggð styður einstaklinga og fjölskyldur sem þurfa á fjárhagslegri aðstoð að halda fyrir jólin. Aðstoðin er veitt í formi úttektarkorts í matvöruverslun á svæðinu.

Sótt er um rafrænt í gegnum íbúagátt Fjarðabyggðar á fjardabyggd.is. Tekið verður við umsóknum til og með 27. nóvember.

Að sjóðnum standa Rauði krossinn, fjölskyldusvið Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefnd Kvenfélagsins Nönnu, kaþólska kirkjan, Kvenfélag Reyðarfjarðar og Þjóðkirkjan. Þessir aðilar hafa um árabil unnið saman að því að styðja einstaklinga og fjölskyldur fyrir jólin.