Fara í efni
09.12.2021 Fréttir

Jólasmásagnakeppni Menningarstofu og grunnskóla Fjarðabyggðar

Deildu

Sögurnar mega vera um hvað sem er og hvernig sem er: Jólasveina, jólaketti, jólagjafir, álfa og þess vegna geimverur, furðudýr og galdrameistara, en innsendar sögur þurfa að tengjast hátíðunum í kringum jólin með einhverjum hætti, gerast um jólin, áramótin og þar um kring.

Reglurnar eru eftirfarandi

Sagan verður að tengjast jólunum á einhvern hátt og hún verður að vera að lágmarki 150 orð en að hámarki 1500. Ef höfundur myndskreytir söguna má taka ljósmyndir og senda inn með sögunni. Nauðsynlegt er að lesa söguna vel yfir og lagfæra stafsetningu áður en hún er send inn. Gott er að fá aðstoð frá einhverjum í skólanum eða fjölskyldunni með slíkt og ekki er verra ef hægt er að slá söguna inn í tölvu ef þess er kostur. Sagan verður að vera á íslensku og hún verður að vera frumsamin.

Sögur má senda á netfangið menningarstofa@gmail.com eða í pósti á:

Fjarðabyggð

B.t. Menningarstofu Fjarðabyggðar

Hafnargata 2

730 Fjarðabyggð

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við innsendingu:

  • Nafn höfundar
  • skóli og bekkur
  • netfang
  • símanúmer forráðamanna

Skilafrestur rennur út 10. desember en vinningssögurnar í hverjum aldurshópi verða birtar á milli jóla og nýárs á Facebook-síðu Menningarstofu Fjarðabyggðar.

Það eru Sögur útgáfa sem gefa verðlaunahöfundum vegleg bókaverðlaun fyrir þrjár bestu jólasmásögurnar að mati dómnefndar í þremur aldurshópum – yngsta stig, miðstig og efsta stig.

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að senda skilaboð á netfangið menningarstofa@gmail.com.