Bæjarstjórar þurfa gjarnan að bera marga hatta en þó sjaldan sjóhatt. Það breyttist hjá Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, þegar hún fór í sinn fyrsta síldartúr með Beiti NK á dögunum.
Jóna Árný segir að hugmyndin hafi kviknað í sumar þegar hún hitti skipstjóra á einu af skipum Síldarvinnslunnar á flugvelli. Talið barst að veiðum og hún nefndi að sig hefði lengi langað að kynnast þeim af eigin raun. Þegar síldveiðarnar hófust ákvað hún því að láta verða af ferðinni.
„Mér finnst viðeigandi að bæjarstjóri í stóru sjávarútvegssveitarfélagi viti hvernig veiðar eins og þessar fara fram,“ segir Jóna Árný.
Út í bræluna
Jónu Árnýju bauðst að fara með Beiti en áður en lagt var af stað var hún vöruð við því að útlit væri fyrir brælu. Það reyndist rétt, enda setti veður töluvert strik í reikninginn framan af veiðiferðinni.
Bæjarstjórinn lét bræluna þó ekki á sig fá og að sögn Ólafs Gunnars Guðnasonar, skipstjóra á Beiti, vottaði ekki fyrir sjóveiki hjá henni. Jóna Árný segist heldur ekki hafa fundið fyrir sjóriðu þegar komið var aftur í land.
Þegar veðrinu slotaði tók við leit að síldinni. Hún fannst undir lok ferðarinnar í kantinum út af Héraðsflóa og þar náðist góð veiði. Beitir kom til Neskaupstaðar með 600 tonn af síld að loknum túrnum.

Fylgdist með störfum áhafnarinnar
Í ferðinni fékk Jóna Árný að fylgjast með fjölbreyttum störfum um borð. Hún var meðal annars í brúnni þar sem hún kynnti sér tækin sem notuð eru við leit og veiðar.
Hún segir athyglisvert að sjá hversu vel skipulögð vinnan var og hvernig áhöfnin gekk ákveðið og fumlaust til verks. Þegar veiðarfærin voru hífð fylltist sjórinn í kringum skipið af lífi. Fuglar söfnuðust að og háhyrningar í tugatali fylgdust með í von um æti.
„Það var stórkostlegt að fá að fylgjast með veiðunum og sjá áhöfnina að störfum. Öll vinnan var vel skipulögð og menn gengu til verka af ákveðni,“ segir Jóna Árný.
Viðurgjörningurinn um borð fékk einnig góða einkunn. Meðal annars var boðið upp á kjöt frá Skorrastað í Norðfirði, þar sem Jóna Árný er alin upp og býr.

Bæjarráðsfundur úti á sjó
Þótt farið væri á síld þurfti bæjarstjórinn einnig að sinna hefðbundnum störfum. Á mánudagsmorgni tók Jóna Árný þátt í bæjarráðsfundi í gegnum Teams úr borðsal Beitis.
Fundurinn gekk vel þrátt fyrir óvenjulega staðsetningu og nettengingin virðist því hafa haldið sjó.
Jóna Árný segir ferðina hafa verið mikið ævintýri og að henni hafi strax verið boðið að koma aftur með Beiti. Hvort sjóhatturinn verði tekinn oftar fram á eftir að koma í ljós.
Fréttin er unnin upp úr umfjöllun Smára Geirssonar á vef Síldarvinnslunnar.
