Endurtekið grjóthrun í Kambaskriðum og hættan sem því fylgir fyrir vegfarendur veldur bæjarráði Fjarðabyggðar þungum áhyggjum. Vegurinn er mikilvæg samgönguleið milli byggðarkjarna og um hann fer meðal annars daglegur skólaakstur.
Bæjarráð telur ekki ásættanlegt að bíða eftir fyrirhugaðri endurbyggingu vegarins án þess að ráðist verði í fyrirbyggjandi aðgerðir. Á fundi ráðsins var eftirfarandi bókað:
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af ástandi vegarins um Kambaskriður í ljósi endurtekinna grjóthruns og þeirrar hættu sem skapast fyrir vegfarendur.
Bæjarráð tekur undir þær ábendingar sem bárust frá skólaráði Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla síðastliðinn vetur um öryggi á þessari mikilvægu samgönguleið. Vegurinn gegnir lykilhlutverki í daglegum samgöngum milli byggðarkjarna vegna atvinnu og þjónustu, þar á meðal skólaaksturs, og núverandi ástand er því óviðunandi.
Endurbætur á vegkaflanum um Kambaskriður hafa verið settar á samgönguáætlun en miðað við fyrirliggjandi tímasetningar er ekki gert ráð fyrir að varanlegum framkvæmdum verði lokið fyrr en eftir 2030. Bæjarráð telur ekki ásættanlegt að beðið verði eftir þeim framkvæmdum án þess að gripið verði til fyrirbyggjandi aðgerða.
Bæjarráð skorar því á Vegagerðina og innviðaráðuneytið að fara tafarlaust í bráðabirgða- og öryggisaðgerðir á svæðinu, meðal annars með tilliti til grjóthrunsvarna, reglubundins eftirlits og annarra ráðstafana sem tryggt geta öryggi og ásættanlegt ástand vegarins þar til varanleg endurbygging fer fram.
Nauðsynlegt er að tryggja að vegurinn sé öruggur og nothæfur fram að fyrirhuguðum framkvæmdum. Ekki er ásættanlegt að láta ástand vegarins versna án viðeigandi viðbragða.
