Fara í efni
13.04.2026 Fréttir, Íþróttir

KFA tekur að sér rekstur knattspyrnusvæða í Fjarðabyggð

Deildu

Fjarðabyggð og Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) hafa undirritað samning um rekstur og daglega umhirðu knattspyrnusvæða í Fjarðabyggð. Með samningnum tekur KFA að sér umsjón með æfinga- og keppnisaðstöðu á Eskjuvelli á Eskifirði, gervigrasvelli á Norðfirði, Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði og grasvelli á Búðargrund á Fáskrúðsfirði. 

Markmið samningsins er að tryggja faglega, samræmda og reglubundna umhirðu vallarsvæða í eigu Fjarðabyggðar, jafnframt því að styðja við áframhaldandi uppbyggingu KFA. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir samninginn mikilvægt skref fyrir íþróttastarf í sveitarfélaginu: „Með þessum samningi er verið að styrkja umgjörð knattspyrnunnar í Fjarðabyggð og tryggja markvissa og faglega umhirðu vallarsvæða sveitarfélagsins. Það skiptir miklu máli fyrir iðkendur, félög og samfélagið allt.“

Helga Rakel Arnardóttir, formaður KFA, segir samninginn skapa betri forsendur fyrir félagið til að sinna verkefninu af metnaði. „Það er ánægjulegt að fá þetta traust frá Fjarðabyggð. Samningurinn skapar betri forsendur fyrir KFA til að sinna svæðunum af metnaði og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu knattspyrnunnar í sveitarfélaginu.“

Samninginn undirrituðu Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Helga Rakel Arnardóttir, formaður KFA.