Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti fimmtudaginn 19. nóvember fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030. Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar og almennar þjónustugjaldskrár A-hluta hækka um 2,5%. Gert er ráð fyrir um 758 milljóna króna rekstrarafgangi hjá sveitarfélaginu og fyrirtækjum þess árið 2027.
Samkvæmt áætluninni stendur reksturinn undir rúmlega milljarðs króna fjárfestingum á næsta ári og afborgunum af lánum. Áfram verður fjárfest í innviðum sveitarfélagsins samhliða því að skuldir lækka.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts lækkar
Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,40% í 0,39%. Almennar þjónustugjaldskrár A-hluta hækka um 2,5% árið 2027.
Með þessu er hækkunum á þjónustugjöldum haldið í hófi samhliða því að sveitarfélagið stendur undir rekstri og uppbyggingu.
Skólastarf og þátttaka barna í fyrirrúmi
Fræðslu- og uppeldismál eru áfram stærsti málaflokkur sveitarfélagsins. Árið 2027 er áætlað að verja 4,5 milljörðum króna til málaflokksins, með áherslu á gott skólastarf og snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur.
Til æskulýðs- og íþróttamála er áætlað að verja 1,45 milljörðum króna. Áhersla er lögð á jöfn tækifæri barna til þátttöku í íþrótta- og frístundastarfi óháð búsetu.
Þá verður áfram unnið að þróun þjónustu við eldra fólk og fjármunum varið til félagsþjónustu og stuðnings við íbúa.
Fjárfest í innviðum og menningu
Fjárfestingar ársins 2027 nema rúmum milljarði króna. Meðal verkefna eru endurbætur á skólahúsnæði, undirbúningur að nýju íþróttahúsi á Eskifirði og áframhaldandi hafnarframkvæmdir.
Í menningarmálum er lögð áhersla á öflugt tónlistar- og listastarf og þátttöku barna og ungmenna. Jafnframt verður haldið áfram uppbyggingu Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði.
Í bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kemur fram að áfram þurfi að leita leiða til hagræðingar í rekstri til að skapa aukið svigrúm til fjárfestinga og viðhalds. Þar er lögð áhersla á að tímanlegt viðhald skóla, íþróttamannvirkja og annarra grunninnviða verji verðmæti og dragi úr þörf fyrir kostnaðarsamari framkvæmdir síðar.
Lækkandi skuldir á áætlunartímanum
Samkvæmt áætluninni lækkar skuldahlutfall samstæðunnar úr 84% í árslok 2027 í 71,9% í árslok 2030. Skuldaviðmið lækkar á sama tíma úr 52,7% í 33,2%.
Langtímalán við lánastofnanir lækka úr tæplega 5,1 milljarði króna í tæplega 3,8 milljarða króna á tímabilinu. Ekki er gert ráð fyrir nýrri lántöku á árunum 2027–2030 að undanskildum lánum frá Ofanflóðasjóði vegna öryggisframkvæmda.
Varfærnar tekjuáætlanir og eftirfylgni
Tekjur eru áætlaðar af varfærni. Þær gætu orðið meiri ef loðnuveiðar árið 2027 verða meiri en nú er útlit fyrir. Sveiflur í atvinnulífi og ófyrirséð útgjöld kalla áfram á skýra forgangsröðun og reglulega eftirfylgni með rekstrinum.
Í bókun sinni þakkar meirihlutinn öllum flokkum í bæjarstjórn fyrir samstarfið við gerð fjárhagsáætlunarinnar og leggur áherslu á mikilvægi samvinnu við forgangsröðun verkefna og að treysta fjárhag Fjarðabyggðar til framtíðar.
