Fara í efni
10.02.2025 Fréttir

Lagning ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar

Deildu

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Fjarðabyggð var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í tilgreindum bæjarkjörnum næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.