Núna hefur Lottan ákveðið að dusta rykið af þessum gömlu sýningum og endurvekja þær, 10 árum síðar og nú innandyra. Við byrjum því á byrjuninni, á Galdrakarlinum í Oz sem er fyrsta verkið sem sérstaklega var skrifað fyrir Lottu. Sýnt verður í Egilsbúð Neskaupstað fimmtudaginn 8. mars nk. kl. 17.30. Miða má nálgast á tix.is eða í gegnum leikhopurinnlotta.is
Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til ævintýralandsins Oz. Þar kynnist hún heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu auk þess sem hún lendir í klóm vondu Vestannornarinnar. Dóróthea og vinir hennar lenda í allskyns hremmingum og þurfa að leita á náðir Galdrakarlsins ógurlega í Oz. Spurningin er núna hvort Galdrakarlinn getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim til sín og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar