Fara í efni
18.09.2026 Fréttir, Skólar

Leikskólinn Eyrarvellir fagnaði tíu ára afmæli

Deildu

Leikskólinn Eyrarvellir í Neskaupstað fagnaði tíu ára afmæli í gær, fimmtudaginn 17. september. Af því tilefni var boðið til opins húss þar sem gestir gátu skoðað leikskólann og rifjað upp liðna tíð.

Boðið var upp á kaffi og kleinur og settar upp leikstöðvar inni á deildum. Í salnum lágu frammi myndaalbúm frá leikskólunum Sólvöllum og Kirkjumel og vakti það mikla lukku að fletta þeim og rifja upp gamlar og góðar minningar.

Myndir frá fyrstu tíu árum Eyrarvalla voru sýndar á skjávarpa og útskriftarmyndir nokkurra árganga prýddu veggi leikskólans. 

/cdn/media/Leikskolar/776044546_10239398779740435_3180416463135684873_n.jpg?v=1789730944
 

Þegar Eyrarvellir voru teknir í notkun var starfsemi leikskólanna í Neskaupstað sameinuð undir einu þaki. Opnunin markaði stór tímamót enda varð þá hægt að bjóða öllum árs gömlum börnum í Fjarðabyggð leikskólapláss. 

Opið hús tókst afar vel og starfsfólk Eyrarvalla þakkar öllum sem komu og fögnuðu þessum tímamótum með leikskólanum.

Ljósmyndir: Hlynur Sveinsson og leikskólinn Eyravellir