Dagar myrkurs eru framundan, sameiginleg byggðahátíð Austurlands þar sem skammdeginu og samverunni er fagnað með fjölbreyttum viðburðum. Í Fjarðabyggð verður dagskrá dagana 24.–31. október með tónleikum, þjóðsögum, myndlist, ritlistarvinnustofu og ljóðalestri. Þrjár kirkjur verða jafnframt að lifandi ljósalistaverkum þar sem þjóðsagan um Völvuna á Hólmahálsi fær nýtt líf.
Hátíðin er haldin ár hvert síðustu vikuna í október og dregur fram tækifærin sem felast í myrkrinu. Myrkrið og árstíðaskiptin veita innblástur og íbúum og gestum er boðið að hittast, prófa eitthvað nýtt og njóta saman. Aðgangur að mörgum viðburðum er ókeypis.
Völvan á Hólmahálsi vaknar til lífs í ljósum og hljóði
Þrjár kirkjur í Fjarðabyggð verða að lifandi listaverkum á Dögum myrkurs þegar listahópurinn Mercury Maze sameinar ljós, hljóð og gagnvirka vörpunarlist. Gestum gefst tækifæri til að taka virkan þátt og verða þannig hluti af verkinu.
Innblásturinn kemur úr þjóðsögunni um Völvuna á Hólmahálsi, sem samkvæmt sögunni verndaði fjörðinn og samfélagið. Sú gamla saga fær hér nýtt líf í samspili listar og tækni, þar sem kirkjurnar verða vettvangur upplifunar í haustmyrkrinu.
Mercury Maze skipa listafólkið Katerina Blahutova, Þorsteinn Eyfjörð og Owen Hindley, sem sameina krafta sína í myndlist, tónlist og tækni.
Ljósalistaverkið verður á þremur stöðum, þrjú kvöld í röð:
- Reyðarfjarðarkirkja: Þriðjudaginn 27. október kl. 20:00–22:00.
- Fáskrúðsfjarðarkirkja: Miðvikudaginn 28. október kl. 20:00–22:00.
- Norðfjarðarkirkja: Fimmtudaginn 29. október kl. 20:00–22:00.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Ritlist og ljóð yfir kaffibolla
Á fyrsta vetrardag, laugardaginn 24. október, leiðir listakonan Eyrún Úa ritlistarvinnustofuna Ósjálfráð skrif í Þórsmörk í Neskaupstað kl. 14:00. Þar verða gerðar æfingar sem miða að því að sækja hugmyndir og innblástur í undirmeðvitundina. Vinnustofan tekur um tvær klukkustundir og er opin áhugasömum á öllum aldri, óháð reynslu af skrifum.
Kl. 16:00 sama dag verður ljóðalestur í Þórsmörk. Skáldin Axel Bragi Andrésson og Leifur Helgi Konráðsson lesa ljóð og gestir geta notið stundarinnar yfir kaffibolla. Aðgangur að báðum viðburðum er ókeypis. Þórsmörk er að Þiljuvöllum 11.
Óperuperlur og færeyskir tónar
Söngdagskráin Undir sömu stjörnu verður í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október kl. 15:00. Söngvarar Óperunnar flytja perlur óperusögunnar og leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason leiða áhorfendur í gegnum söguna. Ólafur Egill Egilsson sér um handrit og leikstjórn og Richard Schwennicke er tónlistarstjóri. Miðaverð er 6.900 kr. og miðasala fer fram á Tix.is.
Mánudaginn 26. október kemur færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir fram í BRJÁN í Neskaupstað ásamt tveimur meðspilurum. Guðrið fylgir þar eftir sjöundu hljóðversplötu sinni, Sýrublað, sem einkennist af grípandi og draumkenndu indípopp-hljómi. Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Miðaverð er 5.990 kr.
Þjóðsögur á bókasöfnunum
Sagnaþulan Berglind Ósk segir íslenskar þjóðsögur á bókasafninu í Neskaupstað mánudaginn 26. október og á bókasafninu á Stöðvarfirði þriðjudaginn 27. október. Báðar stundirnar hefjast kl. 16:00.
Huldufólk, draugar og aðrar kynjaverur koma við sögu og öll sem hafa gaman af góðum sögum eru velkomin. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist, hljóð og árstíðaskipti
Mynd- og hljóðinnsetningin Misseraskipti verður í Bragganum við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði mánudaginn 26. október kl. 20:00. Verkið er eftir Ellu Medicus og Ótal, Óskar Þór Arngrímsson, í samstarfi við Antoníu Berg. Þar fléttast saman myndefni úr nágrenni Neskaupstaðar, náttúruhljóð, söngur og rafrænir tónar. Aðgangur er ókeypis.
Jona Bergdal Jakobsdóttir sýnir verk sín í Rauða húsinu í Beituskúrnum í Neskaupstað. Sýningin verður opin 28. október kl. 17:00–20:00, 29. október kl. 15:00–18:00 og 30. október kl. 14:00–17:00. Verkin verða til sölu og drykkjasala opin í Beituskúrnum.
Fimmtudaginn 29. október kl. 19:00 verður lokaviðburður sýningarinnar VÖLVUMYRKVI: she who sees past corners í Þórsmörk. Helga Dorothea Fannon og Myrra Leifsdóttir flétta þar saman texta, hljóði og ljósi í myrkri sýningarrýmisins. Aðgangur er ókeypis.
Hrekkjavökugleði í Valhöll
Laugardaginn 31. október verður hrekkjavökupartí í Valhöll á Eskifirði. Gleðin hefst kl. 23:00 og DJ Tony Tjokko sér um tónlistina. Aldurstakmark er 18 ár og því tímabært að huga að búningnum.
