Öflugri fjarskiptainnviðir fyrir heimili og atvinnulíf
Ljósleiðaravæðing Mílu í sex þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar er langt komin. Framkvæmdirnar ná til Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar og fela í sér mikilvæga styrkingu fjarskiptainnviða í sveitarfélaginu.
Þegar verkefnið hófst voru 1.012 heimili í Fjarðabyggð án ljósleiðaratengingar samkvæmt kortlagningu sem gerð var vegna átaks um ljósleiðaravæðingu þéttbýlis. Fjarðabyggð var þá það sveitarfélag landsins þar sem flest heimili voru ótengd. Fyrir aðeins fjórum árum var ekki ljóst hvernig unnt yrði að leysa þennan vanda og engin heildstæð lausn í sjónmáli.
„Fyrir fjórum árum vissum við ekki hvernig við myndum leysa þetta mál. Þá var engin lausn í sjónmáli og ljóst að sveitarfélagið stóð frammi fyrir mjög stóru verkefni. Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að við skulum nú sjá fyrir endann á ljósleiðaravæðingu þéttbýliskjarnanna. Aðgangur að öruggum og öflugum fjarskiptum er ein af grunnforsendum búsetu og atvinnustarfsemi og þessi uppbygging skiptir samfélögin okkar miklu máli,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.

Framkvæmdir í sex þéttbýliskjörnum
Ljósleiðaravæðingin hefur verið unnin í áföngum í samstarfi Fjarðabyggðar og Mílu. Umfangsmiklar framkvæmdir hafa þegar farið fram á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og í Neskaupstað.
Í ár hefur áherslan verið á Eskifjörð og Reyðarfjörð. Framkvæmdir hófust þar í vor og ná samtals til 493 staðfanga.
Míla hefur einnig unnið að frekari uppbyggingu fjarskiptainnviða í sveitarfélaginu undanfarin fimm ár. Árið 2021 lauk ljósleiðaravæðingu í dreifbýli við Eskifjörð í samstarfi við RARIK. Samhliða uppbyggingu ljósleiðarakerfisins hefur verið unnið að styrkingu farsímainnviða.
Í sumar var lokið við uppsetningu farsímasendis á Norðfjarðarvita við Neskaupstað. Sendirinn bætir farsímaþjónustu og dekkun á svæðinu. Míla vinnur jafnframt að undirbúningi nýrra farsímastaða á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði.
„Öflugir fjarskiptainnviðir styrkja búsetuskilyrði um allt sveitarfélagið. Þeir auðvelda fólki að vinna og sækja nám óháð búsetu og styðja jafnframt við atvinnuþróun og stafræna þjónustu. Samstarfið við Mílu hefur gengið vel og við þökkum íbúum fyrir þolinmæðina meðan á framkvæmdunum hefur staðið,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Samstarf og þolinmæði íbúa skiptu miklu
Framkvæmdir af þessari stærðargráðu hafa óhjákvæmilega haft í för með sér rask, meðal annars vegna jarðvinnu við heimili og götur. Að sögn Mílu hafa samstarfið við sveitarfélagið og góðar móttökur íbúa átt stóran þátt í því hversu vel verkefnið hefur gengið.
„Við höfum fundið fyrir mikilli jákvæðni og góðu samstarfi í Fjarðabyggð. Okkur hefur verið einstaklega vel tekið af bæði sveitarfélaginu og íbúum og það skiptir miklu máli þegar ráðist er í framkvæmdir af þessari stærðargráðu. Við viljum sérstaklega þakka íbúum fyrir þolinmæðina og gott samstarf á framkvæmdatímanum,“ segir Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu.
Koparkerfinu lokað árið 2027
Áætlað er að loka koparkerfi Mílu í Fjarðabyggð í síðasta lagi 1. maí 2027.
Íbúar og fyrirtæki sem enn nota tengingu um koparkerfið eru hvött til að hafa tímanlega samband við fjarskiptafélag sitt og panta þjónustu um ljósleiðara.
Ljósleiðaravæðingin skapar grundvöll fyrir aukinn gagnaflutning og sífellt fleiri nettengd tæki og þjónustulausnir. Örugg og áreiðanleg nettenging styður meðal annars við atvinnustarfsemi, fjarvinnu, menntun og stafræna þjónustu og styrkir þannig búsetuskilyrði í Fjarðabyggð til framtíðar.
