Fara í efni
22.05.2026 Fréttir, Umhverfi

Ljósleiðaravæðing hafin á Eskifirði og Reyðarfirði

Deildu

Annar áfangi framkvæmda við ljósleiðaravæðingu í Fjarðabyggð á vegum Mílu er hafinn. Um er að ræða mikilvægt innviðaverkefni á Eskifirði og Reyðarfirði þar sem ljósleiðari verður lagður að 493 staðföngum.

Á Eskifirði nær verkefnið til 236 staðfanga og hófust framkvæmdir þar mánudaginn 18. maí síðastliðinn. Verktakinn VV verktakar annast framkvæmdir á Eskifirði og samkvæmt verkáætlun er gert ráð fyrir að jarðvinnu þar ljúki í kringum 20. júní.

Á Reyðarfirði nær verkefnið til 257 staðfanga. Þar eru framkvæmdir einnig hafnar. Rafey ehf. hefur hafið verkið á Reyðarfirði og VV verktakar munu fylgja framkvæmdinni eftir að loknum framkvæmdum á Eskifirði. Áætlað er að jarðvinnu á Reyðarfirði ljúki fyrir mánaðamótin júlí/ágúst.

Gert er ráð fyrir að tengingar verði virkjaðar í áföngum þegar líða tekur á júlímánuð og stefnt er að því að allar tengingar verði virkjaðar fyrir lok ágúst. Áætluð verklok framkvæmdarinnar í heild eru í byrjun september.

Áhersla er lögð á gott samstarf við íbúa og að gengið sé snyrtilega frá yfirborði að framkvæmdum loknum.

Íbúar eru beðnir um að sýna framkvæmdum og tímabundnu raski þolinmæði á meðan verkefnið stendur yfir.

Nánari upplýsingar um framkvæmdina veitir Grétar Ómarsson hjá Mílu í netfanginu gretaro@mila.is