Fara í efni
22.04.2026 Fréttir, Skólar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2026

Deildu

Þriðjudaginn 14. apríl fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Eskifjarðarkirkju. Þar komu saman nemendur úr grunnskólum Fjarðabyggðar til að sýna færni sína í upplestri, túlkun og tjáningu.

Hátíðin er árlegur viðburður þar sem lögð er áhersla á að efla lestur, sjálfstraust og framkomu nemenda. Gestir fengu að njóta vandaðs og fjölbreytts flutnings. Keppnin fer fram í þremur umferðum þar sem nemendur lesa annars vegar sögutexta, ljóð sem valin eru fyrir keppnina og að lokum ljóð að eigin vali, líkt og tíðkast hefur um árabil.

Á meðan dómnefndin fór yfir niðurstöður og vann að úrslitum stigu varamenn á svið og lásu ljóð að eigin vali.

Keppnin var afar jöfn og sýndu nemendur vandaðan og áheyrilegan flutning. Dómnefndin stóð því frammi fyrir vandasömu verkefni við að velja í verðlaunasætin.

Úrslit keppninnar 2026

1. sæti: Sara Antonía Friðþjófsdóttir, Eskifjarðarskóli 

2. sæti: Emma Sólveig Loftsdóttir, Nesskóli 

3. sæti: Rökkvi Halldórsson, Nesskóli

 

Við verðlaunaafhendingu var einnig sérstaklega minnst á framúrskarandi flutning:

Huldu Höskuldsdóttur fyrir ljóðaflutning 

Sæbjörtu Völu Ægisdóttur fyrir upplestur á sögutexta

 

Í dómnefnd sátu Karitas Harpa Davíðsdóttir, Sigurbjörn Marinósson og Þórhildur Tinna Sigurðardóttir.

Á dagskrá hátíðarinnar var tónlistaratriði þar sem Svana Nótt Pálsdóttir frá Eskifirði flutti lagið Stál og hnífur. Einnig flutti Jón Knútur Ásmundsson, skáld og verkefnastjóri, ávarp. Þessi atriði settu hátíðlegan svip á daginn.

Fjarðabyggð óskar öllum keppendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þakkar þeim, kennurum, dómnefnd og öllum sem komu að skipulagningu fyrir vel heppnaða og ánægjulega hátíð.