Fyrsti skráningardagurinn í dymbilvikunni var vel nýttur af starfsfólki leikskólanna í Fjarðabyggð en í kringum 20 starfsmenn frá fjórum leikskólum fóru á námskeið hjá Eyrúnu Ísfold höfundi Lubbi finnur málbein námsefnisins.
Námskeiðið fór fram í Austurbrú og heppnaðist mjög vel.
Hér eru smá upplýsingar um námsefnið Lubbi finnur málbein. Þetta er bók eftir Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur og er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms. Sérstaða Lubbaefnisins eru táknrænar hreyfingar fyrir hvert málhljóð. Á heimasíðu Lubba má finna margvíslegar upplýsingar um Hljóðasmiðjur Lubba, m.a. efni sem leggur grunn að lestri og ritun. Hægt er að hlusta á lög og vísur um öll málhljóðin á YouTube og á Spotify. Einnig eru nýir þættir um Lubba aðgengilegir á Sjónvarpi Símans.
Við hvetjum alla foreldra að kynna sér Lubba efnið með börnum sínum.

