Fara í efni
29.06.2017 Fréttir

Lúpínuátakið hófst í dag

Deildu

Átakið fer fram frá deginum í dag og fram í ágúst vegna þess að jurtin er í háblóma og þá er rót hennar næringarlítil og viðkvæm fyrir slætti.

Á þessu tímabili er hægt að fá lánuð tæki hjá áhaldahúsum utan opnunartíma, frá kl. 18:00 til kl. 08:00 morguninn eftir. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta tækifæri eru beðnir um að hafa samband við umhverfisstjóra Fjarðabyggðar, Önnu Berg Samúelsdóttur, í síma 470 9065 eða á netfanginu anna.berg@fjardabyggd.is. Tekið er við tækjapöntunum og ráðgjöf veitt á öllu tímabilinu.

Sé vilji hverfissamtaka eða einstaklinga til þess að fóstra ákveðin svæði er gott að gera slíkt í samráði við umhverfisstjóra. Tökum höndum saman í átaki gegn útbreiðslu lúpínu!

Á myndinni með fréttinni má sjá starfsmann sveitarfélagsins slá lúpínu sem hefur tekið sér bólfestu innan um annan gróður.