Fræðsluteymi skrifstofu Alþingis hefur síðan vorið 2024 staðið fyrir verkefninu Lýðræðislestin og heimsótt skóla um allt land. Í verkefninu fá nemendur í efstu bekkjum grunnskóla tækifæri til að setja sig í spor þingmanna og kynnast því hvernig lög verða til.
Markmið heimsóknanna er að efla lýðræðisvitund nemenda, kynna hlutverk Alþingis og veita innsýn í dagleg störf þingmanna. Í verkefninu eru nemendur settir í hlutverkaleik og skipt í þingflokka þar sem þeir takast á um tilbúið lagafrumvarp. Þar æfa þeir sig í röksemdafærslu, læra að hlusta á ólík sjónarmið og finna málamiðlanir sem geta orðið grundvöllur lagasetningar.

Þorleifur Örn Gunnarsson, fræðslu- og upplýsingafulltrúi hjá skrifstofu Alþingis, heimsótti að þessu sinni nemendur í 9. og 10. bekk Nesskóla, Eskifjarðarskóla, Grunnskóla Reyðarfjarðar og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar ásamt nemendum á fyrsta ári í Verkmenntaskóla Austurlands. Nemendur stóðu sig allir með prýði og hver veit nema þar sé að finna framtíðar þingmenn.
Með verkefninu fá ungmenni tækifæri til að upplifa lýðræðið í verki og kynnast því hvernig hugmyndir, umræður og málamiðlanir móta lög sem hafa áhrif á samfélagið.
