Fara í efni
05.06.2026 Fréttir, Menning

Magnús Pálsson fyrsti Listamaður Fjarðabyggðar

Deildu

Magnús Pálsson (1929), einn áhrifamesti brautryðjandi íslenskrar samtímalistar, hefur verið útnefndur fyrsti Listamaður Fjarðabyggðar. Veitti hinn aldni listajöfur heiðursnafnbótinni viðtöku við athöfn í Gamla barnaskólanum á Eskifirði í dag, en Magnús er borinn og barnsfæddur Eskifirðingur. 

Athöfnin var liður í formlegri opnun tvíæringsins Innsævis, menningar- og listahátíðar Fjarðabyggðar, en þessi fyrsta útnefning markar jafnframt upphaf nýrrar stefnu sveitarfélagsins um eflingu lista og varðveislu menningararfsins. Útnefningin er til tveggja ára eða til 2028. 

Ljósmynd: Gunnar Gunnarson. Magnús Pálsson, Listamaður Fjarðabyggðar ásamt fjölskyldu sinni og Jónu Árný, bæjarstjóra og Þórhildi Tinnu, forstöðumanni Menningarstofu.
 

Verk Magnúsar, spanna gjörningalist, hljóðverk og hugmyndalist. Listræn arfleifð hans er leiðarstef í „Óður til niðarins“ sýningu sem haldin er í Gamla barnaskólanum á Eskifirði og byggir á samtali samtímalistamanna af yngri kynslóðum við hugmyndaheim Magnúsar í verkum sínum. Þá eru sýningar á heimildarmyndinni „Á Skjön“, sem fylgir Magnúsi eftir í sköpunarferlinu, einnig á dagskrá Innsævis.

Magnús hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ævistarf sitt, og meðal annarra má nefna að hann var borgarlistamaður Reykjavíkurborgar árið 2011.

Ljósmynd: Gunnar Gunnarson.

Til fróðleiks má svo geta þess að árið 1975 fékk Hildur Hákonardóttir, þáverandi skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Magnús til að stofna nýlistadeild og veitti hann deildinni forstöðu allt til ársins 1984. Útskrifuðust á þeim árum margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar, en deildin og starfsaðferðir hans þóttu umdeildar meðal eldri myndlistamanna þar sem frjálslyndi m.a. í mætingu og listsköpun voru í forgrunni. Þá kynntist Magnús FLUXUS-hreyfingunni í gegnum listamanninn Dieter Roth og er að finna hljóðverk eftir hann á einhverjum plötum sem hreyfingin hefur sent frá sér, sem og fleiri myndlistatengdum plötuútgáfum.