Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, tók þátt í opnum fundi Hinsegin Austurlands í Valaskjálf á Egilsstöðum mánudaginn 10. ágúst. Á fundinum voru flutt fjölbreytt erindi um stöðu og réttindi hinsegin fólks, menningu, samfélag og þátttöku.
Simona Mursec, formaður Ljubljana Pride og stjórnarmaður í ILGA Europe, fjallaði ásamt Maja Sucur um reynslu af hinsegin starfi og menningarmálum í Slóveníu. Kittý Anderson fjallaði fyrir hönd Intersex Íslands um lög um kynrænt sjálfræði, hvað hefði áunnist og hvaða verkefni væru enn fram undan.
Jóhannes Þór frá Samtökunum ’78 fjallaði meðal annars um þróun orðræðu í málefnum hinsegin fólks og hvernig þekkt mynstur, svo sem afneitun, krafa um ósýnileika og vísanir til málfrelsis, geta ýtt undir skautun í samfélagsumræðunni.
Fulltrúi Alcoa Fjarðaáls kynnti jafnframt EAGLE, alþjóðlegt starfsmannanet Alcoa fyrir LGBTQ+ starfsfólk og bandamenn, sem vinnur að því að skapa vinnuumhverfi þar sem öll geta verið þau sjálf og notið jafnræðis og virðingar.
Þórhildur Tinna flutti erindið „Menning sem athvarf“, þar sem hún fjallaði um hvernig menning og skapandi starf geta skapað rými til að tilheyra fyrir börn og ungmenni sem finna sig ekki endilega innan hefðbundins íþrótta- eða æskulýðsstarfs.

Í erindinu ræddi hún meðal annars mikilvægi skapandi starfs fyrir hinsegin börn og ungmenni á Austurlandi. Bæði hinsegin samfélagið og skapandi samfélagið á svæðinu eru dreifð yfir stórt landsvæði og getur menningarstarf því gegnt mikilvægu hlutverki sem samkomustaður þar sem ungt fólk myndar tengsl, styrkir sjálfsmynd sína og upplifir sig sem hluta af stærri heild.
Þórhildur byggði meðal annars á reynslu sinni af starfi Menningarstofu Fjarðabyggðar og LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi, og ræddi mikilvægi þess að þróa áfram skapandi starf fyrir börn og ungmenni á svæðinu.
Í kjölfar fundarins bauð Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Kittý Anderson og Simonu Mursec í heimsókn á bæjarskrifstofuna. Þær hittust þar í dag og ræddu meðal annars stöðu hinsegin fólks í Fjarðabyggð, hvað stendur ungu hinsegin fólki til boða og hvar tækifæri eru til að gera enn betur.

