Sinfóníuhljómsveit Austurlands hélt glæsilega tónleika í Eskifjarðarkirkju á dögunum þar sem saxófónkonsertinn Dichotomies eftir Héraðsbúann Wes Stephens var frumfluttur. Einleikari á tónleikunum var Guido Bäumer, sem áður bjó og kenndi á Seyðisfirði, og komu fjölmargir núverandi og fyrrverandi íbúar Fjarðabyggðar fram með hljómsveitinni.
Á efnisskránni voru einnig L'Arlésienne svíta nr. 2 eftir Bizet og Sinfónía nr. 9 eftir Dvořák. Gunnsteinn Ólafsson stjórnaði hljómsveitinni. Tónleikarnir voru vel sóttir og um 150 gestir sóttu þá.
Meðal gesta á tónleikunum var Finnur Bjarnason, nýr óperustjóri, sem kom austur til að vera viðstaddur tónleikana og kynna sér aðstæður með tilliti til komandi verkefna Þjóðaróperunnar.

Styrkir áframhaldandi uppbyggingu tónlistarlífs
Í hléi tónleikanna tilkynntu Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Sóley Þrastardóttir, formaður stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Austurlands, að Menningarstofa Fjarðabyggðar og Sinfóníuhljómsveit Austurlands hefðu gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum felst í samstarfinu að Menningarstofa Fjarðabyggðar veitir hljómsveitinni árlegan styrk að upphæð ein milljón króna á árunum 2026 til og með 2028, til stuðnings almennri starfsemi hennar og áframhaldandi uppbyggingu tónlistarlífs á Austurlandi.
„Það er mikið ánægjuefni að Menningarstofa Fjarðabyggðar geti stutt við starf Sinfóníuhljómsveitar Austurlands næstu þrjú árin. Hljómsveitin er mikilvægur þáttur í menningarlífi svæðisins og samstarfið er liður í að efla tónlistaruppbyggingu, skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk og styðja við metnaðarfull verkefni í heimabyggð,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri.

„Tónlistarmiðstöð Austurlands og síðar Menningarstofa Fjarðabyggðar hafa ávallt verið nánasti samstarfsaðili hljómsveitarinnar um verkefni hennar. Við erum afskaplega ánægð með að styrkir frá bæði ríki og stóru sveitarfélögunum á Austurlandi séu tryggðir næstu þrjú árin, því það gefur okkur verulega aukið öryggi í rekstrinum. Við hlökkum til að halda áfram að flytja frábæra tónlist fyrir íbúa Austurlands,“ segir Sóley Þrastardóttir, formaður stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Austurlands.
Í samningnum kemur jafnframt fram að Sinfóníuhljómsveit Austurlands skuldbindi sig til að halda úti starfsemi sem veitir tónlistarfólki á svæðinu tækifæri til að koma fram, meðal annars hljóðfæraleikurum, einsöngvurum, kórum og tónskáldum, og að halda að minnsta kosti eina tónleika á ári í Fjarðabyggð sem opnir eru almenningi. Samningurinn gildir til 31. desember 2028.


