Fara í efni
27.10.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Þjóðaróperan vilja efla óperustarf á Austurlandi

Deildu

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Markmiðið er að auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Finnur Bjarnason, óperustjóri, undirrituðu yfirlýsinguna að viðstöddum Loga Einarssyni menningarmálaráðherra. Undirritunin fór fram í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október, áður en sýning Þjóðaróperunnar, Undir sömu stjörnu, hófst. Uppselt var á sýninguna sem er hluti af opnunarviðburði Þjóðaróperunnar.

Byggt á samstarfi sem þegar er hafið

Með viljayfirlýsingunni vilja aðilar byggja áfram á þeirri reynslu, þekkingu og tengslum sem hafa orðið til við undirbúning sýningarinnar. Tónlistarfólk af Austurlandi hefur tekið þátt í verkefninu og meðal annars hefur verið stofnaður kór í tengslum við uppsetninguna.

Stefnt er að annarri stórri óperusýningu á Austurlandi á næstu árum og árlegu fræðsluverkefni í samstarfi við skóla og aðra samstarfsaðila. Sérstök áhersla verður lögð á að börn og ungmenni fái tækifæri til að kynnast óperulist og taka þátt í skapandi starfi.

Jafnframt verður unnið að því að efla þátttöku og starfsþróun tónlistarfólks á svæðinu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Austurlands, kóra, tónlistarskóla og sjálfstætt starfandi tónlistarfólk.

/cdn/media/undirritun-thjodaroperna_5.jpg?v=1793092168
Logi Einarsson, menningarmálaráðherra, Jóna Árný, bæjarstjóri og Finnur Bjarnason, óperustjóri

„Við viljum að íbúar geti notið fjölbreytts menningarlífs í heimabyggð og að tónlistarfólkið okkar fái tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem þessum. Samstarfið um sýninguna hefur skapað tengsl og reynslu sem við viljum byggja áfram á. Með þessari viljayfirlýsingu horfum við til framhaldsins, með sérstakri áherslu á börn og ungmenni og tækifæri þeirra til að kynnast óperulist,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Finnur Bjarnason óperustjóri tekur undir mikilvægi þess að byggja áfram á reynslunni af samstarfinu.

„Nú þegar við höfum lokið fyrsta stóra samstarfsverkefninu með farsælum hætti er mikilvægt að nýta þá dýrmætu reynslu sem fékkst í ferlinu, læra bæði af því sem vel gekk og því sem betur má fara. Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að hafa nú undirritað viljayfirlýsingu sem tekur til ólíkra þátta samstarfsins og leggur grunn að áframhaldandi uppbyggingu. Það er mikill vilji hjá okkur til að rækta þetta samstarf, skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk og gera óperuna að virkum hluta menningarlífsins á Austfjörðum.“

Þjóðarópera sem tilheyrir allri þjóðinni 

Í erindi við undirritunina lagði Logi Einarsson menningarmálaráðherra áherslu á að Þjóðaróperan skapaði rými fyrir ný íslensk verk og gæfi ungum tónskáldum og söngvurum tækifæri til að þróast.

„En umfram allt skiptir máli að þetta verði raunveruleg þjóðarópera. Að hún nái að glæða áhuga landsmanna á óperulistinni. Ekki síst unga fólksins. Og það þarf að birtast í öllu starfi: í verkefnavali, miðlun og sýnileika um land allt,“ sagði Logi.

Hann benti jafnframt á að samstarfið við listafólk og menningarstofnanir um landið í Undir sömu stjörnu sýndi hvernig Þjóðaróperan gæti orðið vettvangur sem landsmenn um allt land tækju þátt í og nytu.

Undir sömu stjörnu er fyrsta sýning Þjóðaróperunnar. Hún var fyrst flutt í Hofi á Akureyri og síðan í Eskifjarðarkirkju. Næstu sýningar verða í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 1. nóvember, Skálholtsdómkirkju 8. nóvember og Þjóðleikhúsinu 15. nóvember.

Viljayfirlýsingin gildir til þriggja ára. Menningarstofa Fjarðabyggðar annast eftirfylgni hennar fyrir hönd sveitarfélagsins. Samið verður sérstaklega um framkvæmd, verkaskiptingu og fjármögnun einstakra verkefna.