Fara í efni
05.02.2026 Fréttir, Menning

Menningarstofa hlýtur öndvegisstyrk úr Safnasjóði

Deildu

Menningarstofa Fjarðabyggðar fær úthlutað öndvegisstyrk úr Safnasjóði við aðalúthlutun sjóðsins í ár fyrir verkefnið „Sameining safna Fjarðabyggðar“. Styrkurinn telur 3.500.000 krónur á ári næstu þrjú árin (2026–2028) og verður nýttur til þess að fá almenning og sérfræðinga að borðinu við stefnumótun og þróun í innra og ytra starfi safnanna. Söfn Fjarðabyggðar eru Frakkar á Íslandsmiðum, Íslenska stríðsárasafnið, Sjóminjasafn Austurlands og Safnahúsið í Neskaupstað.

Menningarstofa fær einnig úthlutað 2.000.000 króna einsársstyrk í verkefnið „Eftirfylgni með athugasemdum Safnaráðs, viðbragðsætlanir og neyðarkistur“. Ýmsar úrbætur verða gerðar á húsnæði og aðstöðu í Sjóminjasafninu á Eskifirði og öryggismál og viðbragðsgeta á söfnunum fjórum stórbætt.

Öndvegisstyrkurinn fylgir í kjölfar undirbúningsverkefnisins „Samhæfing safna Fjarðabyggðar“ sem Menningarstofa hlaut einsársstyrk fyrir í fyrra. Niðurstaða þess undirbúningsverkefnis var að hagkvæmast sé að sameina söfnin í eina stofnun undir Menningarstofu Fjarðabyggðar. Með því að halda úti einu, viðurkenndu safni í stað núverandi fyrirkomulags er stjórnsýsla einfölduð og sóknarfæri í styrkveitingum og faglegu starfi stórefld. 

Ekki verður dregið úr þjónustu við íbúa eða starfsemi safnanna með sameiningunni heldur gefst nú færi á að nýta aðföng betur til þess að efla starf safnanna. Áætlað er að verkefnið „Sameining safna Fjarðabyggðar“ standi til 2030 og að þjónusta verði aukin jafnt og þétt á þeim tíma.

Þetta er í fyrsta skiptið sem söfn Fjarðabyggðar hljóta öndvegisstyrk úr Safnasjóði. Öndvegisstyrkurinn er því mikil viðurkenning á þeim faglega undirbúningi sem unninn hefur verið á Menningarstofu undanfarið ár. Framundan er mikil vinna sem vonir standa til að íbúar taki virkan þátt í, svo sem á íbúafundum, með fræðslu- og samráðsheimsóknum í skóla og í samtali í raunheimum og á netinu. Opnir fundir, vinnustofur og aðrir viðburðir verða auglýstir þegar nær dregur.

Við aukaúthlutun í desember hlaut Menningarstofa einnig 300.000 króna fræðslustyrk. Hann verður nýttur í fræðsluferð safnateymis Menningarstofu á Farskóla Félags íslenskra safna og safnafólks á Ísafirði haustið 2026.