Sundlaug Eskifjarðar er lokuð vegna viðhalds, stefnt er að opna aftur 27. ágúst. 

Fara í efni
19.08.2026 Fréttir, Menning

Mikill áhugi á framtíð Stríðsárasafnsins

Deildu

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Sara Hjördís Blöndal, sýningarhönnuður nýrrar sýningar Stríðsárasafnsins, héldu opinn íbúafund á Reyðarfirði mánudaginn 18. ágúst. Þar var fjallað um framtíð safnsins og verkefni Menningarstofu í tengslum við nýja sýningu kynnt.

Sköpuðust góðar og opnar umræður um uppbyggingu nýs Stríðsárasafns. Ljóst er að mikill áhugi er meðal íbúa á verkefninu og framtíð safnsins. 

/cdn/media/IMG_2738.jpeg?v=1787146710

Íbúar komu fjölmörgum sjónarmiðum, hugmyndum og ábendingum á framfæri. Þær munu nýtast áfram við hönnun nýrrar sýningar, uppbyggingu safnsins og skipulag umhverfisins í kringum það.

Á fundinum komu einnig fram ýmsar sögur og minningar tengdar lífinu á stríðsárunum. Slíkar frásagnir og heimildir geta verið mikilvægur hluti af þeirri sögu sem miðlað verður í safninu.

Menningarstofa hvetur því alla sem búa yfir sögum, heimildum eða ábendingum tengdum stríðsárunum á Reyðarfirði og í Fjarðabyggð til að hafa samband. Einnig er velkomið að senda inn spurningar eða benda á efni sem gæti nýst við vinnuna.

Hægt er að hafa samband við Menningarstofu á netfanginu sofn@fjardabyggd.is.