Fara í efni
10.03.2026 Fréttir, Menning

Myndlist og ljóðagerð í Jensens húsi

Deildu

Listamaðurinn Davíð Art Sigurðsson dvaldi í listamannshúsinu Jensens húsi á Eskifirði í febrúar mánuði. Dvölin var vinnusöm en auk þess að sinna eigin sköpun gaf Davíð mikið af sér til samfélagsins í Fjarðabyggð með heimsóknum, námskeiðum og rausnarlegum gjöfum.

Davíð nýtti tímann í Jensens húsi til að vinna að sinni annarri ljóðabók auk þess sem hann sinnti myndlistinni af krafti. Listamannshúsið sjálft, sem stendur við Strandgötu á Eskifirði, er sögufrægt hús sem byggt var árið 1837 af Jensens-ættinni. Húsið er eitt af elstu húsunum á staðnum og hefur verið endurgert til að hýsa listamenn, sem veitir þeim einstakt næði og innblástur í sögulegu umhverfi við fjörðinn.

Davíð Art og Laufey sviðsstjóri Fjölskyldusviðs
Davíð Art og Laufey sviðsstjóri Fjölskyldusviðs

Samvera þvert á kynslóðir

Dvölin snerist þó ekki eingöngu um einangrun við skrifborðið. Davíð heimsótti íbúa á dvalarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði nokkrum sinnum þar sem hann las fjölbreytt úrval ljóða ásamt því að lesa upp úr ljóðum sínum. Þessar stundir vöktu mikla lukku en listamaðurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að færa listina beint til fólksins í sínu nánasta umhverfi.

Listasmiðja og rausnarleg gjöf

Tenging Davíðs við yngstu kynslóðina í Fjarðabyggð er einnig sterk. Í október síðastliðnum stýrði hann vinsælli listasmiðju á Litlu listahátíðinni á Reyðarfirði. Í febrúar fylgdi hann þeirri vinnu eftir með því að færa Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar sérstaka gjöf: málverk sem unnið var í samstarfi við börnin á hátíðinni. Verkið er tákn um sköpunargleði barnanna í Fjarðabyggð. Ásamt því verki færði Davíð Fjölskyldusviði annað verk, verk sem málað var af börnum í Reykjavík þegar Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 2000.

Ekki lét Davíð þar við sitja því hann hélt einnig myndlistarnámskeið fyrir krakka á Reyðarfirði tvo laugardaga í febrúar.

Samvinnuverk barnanna frá Litlu Listahátíðinni '25

-

Verk barnanna frá Menningarnótt Reykjavíkur 2000

 

Um Jensens hús

Jensens hús er hluti af menningararfi Eskifjarðar. Það var upphaflega verslunarhús en hefur öðlast nýtt líf sem griðastaður lista- og fræðimanna. Með því að bjóða upp á aðstöðu sem þessa tekst Fjarðabyggð að laða til sín fjölbreytta listamenn sem skilja eftir sig dýrmæt spor í samfélaginu, líkt og dvöl Davíðs Art Sigurðssonar ber vott um. Fyrir áhugasama má hafa samband við Menningarstofu á menningarstofa@fjardabyggd.is.