Fara í efni
19.05.2026 Fréttir, Bæjarstjórn

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Fjarðabyggð 2026

Deildu

Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Fjarðabyggð

Sveitarstjórnarkosningar fóru fram laugardaginn 16. maí. Í Fjarðabyggð voru 3.972 á kjörskrá og greiddu alls 2.639 atkvæði. Kjörsókn var því 66,4%. Auðir og ógildir seðlar voru 60.

Atkvæði og hlutfall atkvæða

Listi Atkvæði Hlutfall
B-listi Framsóknar 505 19,6%
D-listi Sjálfstæðisflokks 749 29,0%
M-listi Miðflokks 618 24,0%
S-listi Samfylkingar og annars félagshyggjufólks 707 27,4%

Níu fulltrúar taka sæti í bæjarstjórn Fjarðabyggðar á nýju kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa kjörna, Framsókn tvo, Miðflokkurinn tvo og Samfylkingin og annað félagshyggjufólk tvo.

Kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn Fjarðabyggðar

B-listi Framsóknar

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir
  • Birgir Jónsson

D-listi Sjálfstæðisflokksins

  • Ragnar Sigurðsson
  • Kristinn Þór Jónasson
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir

M-listi Miðflokksins

  • Hrafn Bjarnason
  • Alma Sigurbjörnsdóttir

S-listi Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks

  • Stefán Þór Eysteinsson
  • Hjördís Helga Seljan

Niðurstöðurnar eru birtar á vef Fjarðabyggðar í samræmi við 119. gr. a kosningalaga nr. 112/2021, þar sem kveðið er á um birtingu kosningaúrslita og skil á kosningaskýrslum.

Fjarðabyggð þakkar kjósendum, frambjóðendum, yfirkjörstjórn, starfsfólki kjörstjórna og öllum þeim sem komu að framkvæmd kosninganna fyrir þátttökuna og vel unnin störf.

Ný bæjarstjórn tekur formlega við á fyrsta fundi sínum á nýju kjörtímabili.