Fara í efni
06.06.2024 Fréttir

Ný slökkvibifreið afhent slökkviliði Fjarðabyggðar

Deildu

,,Með tilkomu nýrrar bifreiðar mun viðbragð og gets slökkviliðs Fjarðabyggðar aukast gríðarlega og í takt við þá auknu atvinnustarfsemi og fólksfjölgun sem hefur átt sér stað í sveitarfélaginu undanfarin ár." Sagði Júlíus A. Albertsson, slökkviliðstjóri.

Bifreiðin er búin einu öflugasta kerfi sem völ er á, svokölluðu One-Seven 5500 slökkvikerfi, sem sjöfaldar slökkvimátt þess vatns sem notað er um leið og mengun við slökkvistörf minnkar. Auk þess hefur bifreiðin Euro 6 vottun og er því mun umhverfisvænni en sú bifreið sem hún mun leysa af hólmi. Auk hefðbundinnar hand-hitamyndavélar verður bifreiðin búin hitamyndavél, sem veitir slökkviliðinu mikla möguleika til þess að bæði leita að fólki við bryggjur og finna heit rými t.d. við eld í skipum og byggingum. Munu nú slökkviliðsmenn fá þjálfun og kennslu á bifreiðina frá framleiðanda og í kjölfarið verður hún tekin í fulla notkun.

Slökkviliðið mun svo sýna bifreiðina á hátíðardagskrá 17. júní á Stöðvarfirði.