
Föstudaginn 3. apríl hefst ný tónleikaröð, Víkurvaki, í Frystihúsinu á Breiðdalsvík þegar hljómsveitin Hipsumhaps stígur á svið. Kvöldið markar upphaf metnaðarfulls verkefnis sem ætlað er að efla tónlistarlíf á Austurlandi og styrkja Frystihúsið sem mikilvægan tónleikastað.

Hipsumhaps hafa á undanförnum misserum vakið athygli fyrir kraftmikla sviðsframkomu og ferskan hljóm.
Hipsumhaps byrjaði sem dúó þeirra Fannars Inga Friðþjófssonar og Jökuls Breka Þórhallssonar frá Álftanesi og þeir slógu strax í gegn með sínu fyrsta útgefna lagi, Lífið sem mig langar í.
Þeir fylgdu laginu eftir með breiðskífunni Best gleymdu leyndarmálin um haustið og voru valdir bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2020.
Frá vorinu 2021 hefur hljómsveitin verið sóló-verkefni Fannars Inga, sem hefur síðan þá gefið út tvær aðrar plötur: Lög síns tíma (2021) og Ást og praktík (2023).

Tónlistarkonan Ína Berglind mun hita upp fyrir tónleikana og setja tóninn fyrir kvöldið.
Ína Berglind er Austfirðingur í húð og hár og vakti mikla athygli eftir sigur sinn í Söngvakeppni Samfés 2023. Síðan þá hefur hún komið víða fram með fjölbreyttum lista af tónlistarfólki og staðið einnig fyrir viðburðum sjálf. Ína semur og gefur út eigin tónlist en þess má geta að nýverið gaf hún út smáskífuna ,,Eitt sinn" sem nú má finna á öllum helstu streymisveitum.
Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikar hefjast kl. 21:00.
Víkurvaki er ný tónleikaröð á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar í samstarfi við Frystihúsið á Breiðdalsvík. Á árinu 2026 mun röðin bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem ólíkar hljómsveitir og listafólk úr mismunandi stefnum stíga á svið. Markmiðið er að efla Frystihúsið sem lifandi menningarvettvang og styrkja stöðu Austurlands á tónlistarkorti landsins.
Verkefnið er hluti af nýju áhersluátaki Menningarstofu Fjarðabyggðar í tónlistaruppbyggingu og byggir á fyrri verkefnum á borð við tónleikaröðina Strengi sem fór fram árið 2025.
