Forritanleg vélmenni, þrívíddarteikningar og tækni í leikskólastarfi voru meðal þess sem 42 manna hópur frá leikskólum Fjarðabyggðar kynnti sér í námsferð til Vilníus í Litháen dagana 7.–11. október.
Í hópnum var starfsfólk Dalborgar á Eskifirði, Eyrarvalla í Neskaupstað og Kærabæjar á Fáskrúðsfirði. Fræðsla, fagleg samtöl og skólaheimsóknir voru í forgrunni ferðarinnar, með áherslu á hugmyndir og aðferðir sem geta nýst í starfinu með börnunum.
Tæknin áberandi í skólastarfinu
Fyrri fræðsludaginn kynnti Lukas Benevičius, frumkvöðull og ráðgjafi í menntun, menntakerfið í Litháen og bar það saman við það íslenska. Lukas er einn af stofnendum UMO-skólans, sem hópurinn heimsótti, en starfar nú við ráðgjöf á sviði menntunar.
Starfsfólkið tók einnig þátt í námskeiðum um uppeldi og menntun barna, læsi, stafræna færni og STEAM-nám. Í þeirri nálgun fléttast saman vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði.
Þátttakendur fengu sjálfir að prófa ýmis forrit og búnað sem nýttur er í kennslu með börnum. Þar á meðal voru lítil forritanleg vélmenni og vefsíður þar sem hægt er að skoða og búa til þrívíddarteikningar með börnunum.
Að mati hópsins var áberandi hversu mikið tæknin er nýtt í skólastarfinu. Í fræðslunni kom fram að litháenska ríkið hefði lagt aukið fjármagn í STEAM-menntun fyrir tveimur árum og að sú nálgun nyti nú vaxandi áherslu í námskrám skóla.
Heimsóknir í leikskóla og FabLab-smiðju
Seinni fræðsludaginn heimsótti hópurinn tvo einkarekna leikskóla, UMO-leikskólann og Montessori Metodo Centras, sem starfar eftir Montessori-aðferðinni. Einnig var farið í opinbera leikskólann Jurginėlis í Vilníus.
Heimsóknirnar veittu innsýn í ólíkt skólaumhverfi og gáfu starfsfólkinu tækifæri til að sjá hvernig mismunandi áherslur birtast í daglegu starfi með börnum.
Þá lá leiðin í Sietuva-grunnskólann í Vilníus, þar sem hópurinn kynnti sér FabLab-smiðju skólans og snæddi einnig hádegisverð.
Starfsfólkið sneri heim með nýjar hugmyndir og innblástur til að þróa áfram í leikskólunum þremur. Reynslan úr ferðinni gefur þannig efnivið í áframhaldandi fagleg samtöl um hvernig nýta megi tækni og fjölbreyttar námsleiðir í starfinu með börnunum.





